Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, hefur notað falsupplýsingar til að gera Úkraínu að blóraböggli í kosningabaráttu sinni, að sögn sérfræðinga, og sumir gefa í skyn að hann fái leynilega hjálp frá Rússlandi gegn fordæmalausri áskorun við 16 ára valdatíð sína.
Þjóðernissinnaði og íhaldssami forsætisráðherrann er nánasti bandamaður Rússa í Evrópusambandinu og hefur notað gervigreindarmyndir til að magna upp andúð gegn Úkraínu, sem berst gegn innrás Rússa.
Sérfræðingar halda því fram að Rússland aðstoði hann við að beina umræðunni frá hversdagslegum málum sem hafa skotið flokki stjórnarandstöðuleiðtogans Péters Magyar á toppinn í skoðanakönnunum fyrir kosningarnar í Ungverjalandi 12. apríl.
Friður gegn stríði
„Orðræða kosningabaráttunnar er vísvitandi svarthvít – friður gegn stríði – þar sem Úkraína er sýnd sem áhætta og sitjandi ungversk stjórnvöld sem leitast við stöðugleika og skynsemi,“ sagði Csilla Fedinec, sagnfræðingur við Félagsvísindamiðstöð ELTE-háskólans, í samtali við AFP.
Nágrannaríkin tvö hafa eldað grátt silfur saman eftir að Orbán sakaði Úkraínu um að tefja fyrir enduropnun olíuleiðslu sem flytur rússneska olíu til Ungverjalands, sem er landlukt, en stjórnvöld í Úkraínu segja að leiðslan hafi skemmst í rússneskum loftárásum í janúar.
Ungverjaland, sem er aðili að Evrópusambandinu, hefur einnig tafið fyrir 90 milljarða evra (13 þúsund milljarðar króna eða 13 billjónir) láni ESB til hinnar stríðshrjáðu Úkraínu og nýrri umferð refsiaðgerða gegn Rússlandi vegna innrásarinnar.
Falsmyndir notaðar í áróðri
Í síðasta mánuði handtóku ungverskar sérsveitir gegn hryðjuverkum tímabundið úkraínska bankastarfsmenn og lögðu hald á verðmæti sem fóru í gegnum landið.
Æsifréttablöð tengd Fidesz-flokki Orbáns birtu myndir sem búnar voru til með gervigreind og ýktu magn reiðufjár og gulls sem um var að ræða.
Færslur með myndunum fengu óvenju mikla virkni á Facebook, þar sem margir aðgangar voru með nöfn sem ekki voru ungversk, skorti opinberar upplýsingar eða prófílmyndir – dæmigerð merki um falsaða aðganga sem notaðir eru í samræmdum átaksherferðum.
Vikum áður fóru falsaðar myndir að berast á netinu sem sýndu að því er virðist ungverskan minnisvarða í Transkarpatíu – heimkynni ungverska minnihlutans í Úkraínu – sem hafði verið skemmdur með slagorðum gegn Ungverjum og Orbán, auk úkraínskra þjóðernistákna og hakakross.
Þótt minnisvarðinn hafi verið skemmdur nokkrum sinnum áður, kom í ljós að myndirnar voru búnar til með gervigreind.
Engu að síður leiddi birting þeirra til þess að sumir notendur samfélagsmiðla kröfðust hefndaraðgerða.
Sérfræðingar halda því fram að einnig séu vísbendingar um áframhaldandi tilraunir Rússa til að hafa áhrif á ungverska kjósendur í aðdraganda kosninganna, meðal annars með notkun djúpfalsana og óupplýsinga sem settar eru fram sem ósviknar fréttir.
„Það er stöðugt greinanleg falsupplýsingaherferð til að hafa áhrif á ungversku kosningarnar, líkt og var í kosningunum í Moldóvu og Rúmeníu,“ sagði Ferenc Fresz, fyrrverandi yfirmaður netvarnarþjónustu Ungverjalands, í samtali við AFP.




















































Athugasemdir (1)