Ræða Macrons í dag Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, flytur ræðu við hlið kjarn­orkuknú­ins flug­skeytakaf­báts (SSBN) „Le Tem­er­aire“ - S617 í heim­sókn sinni í kjarn­orkukaf­báta­stöð­ina Ile Longue í Crozon í norð­vest­ur­hluta Frakk­lands í dag. Mynd: AFP

Fjölga kjarnorkuvopnum og dreifa um Evrópu

Macron Frakk­lands­for­seti kynnir sam­starf Evr­ópu­þjóða um fæl­ingu með kjarn­orku­vopnum.

Emmanuel Macron, for­seti Frakk­lands, sagði í ræðu í dag að átta Evr­ópu­ríki hefðu sam­þykkt að taka þátt í „full­komnu“ kjarn­orku­fæl­ing­ar­kerfi sem Frakk­land leggur til

Löndin, sem eru Þýska­land, Bretland, Pólland, Holland, Belgía, Grikk­land, Svíþjóð og Danmörk – munu geta hýst franska „stra­tegíska flug­her­inn“, sem mun þannig geta „dreifst um álf­una“ til að „flækja útreikn­inga and­stæð­inga okkar,“ sagði hann.

Kerfið gæti einnig falið í sér „hefð­bundna þátt­töku banda­manna í kjarn­orku­starf­semi okkar,“ svo sem nýlegar her­æf­ingar þar sem breskar her­sveitir hafa tekið þátt, bætti Macron við.

Macron sagði að stjórn­völd í París, London og Berlín muni „vinna saman að verk­efnum sem snúa að mjög lang­drægum flug­skeytum“.

„Að því er varðar getu til lang­drægra árása munu Þýska­land, Bretland og Frakk­land ... vinna saman að verk­efnum sem snúa að mjög lang­drægum flug­skeytum,“ sagði Macron í ræðu sinni frá kjarn­orkukaf­báta­stöð­inni Ile Longue í Frakk­landi.

Macreon sagði að Frakk­land myndi …

Kjósa
7
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Gunnar Björgvinsson skrifaði
    https://www.visir.is/g/20252767219d/gegn-hernadi-hvers-konar
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurnýjun Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár