Evrópusambandið reynir að taka forystu í alþjóðaviðskiptum

„Móðir allra frí­versl­un­ar­samn­inga,“ segir Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands, um nýjan frí­versl­un­ar­samn­ing við ESB, sem reynir líka að koma á frí­verslun við Suður-Ameríku, til að mæta vopn­væð­ingu Banda­ríkj­anna á við­skiptum.

Evrópusambandið reynir að taka forystu í alþjóðaviðskiptum
Full­trúar tveggja millj­arða manna Narendra Modi, for­sæt­is­ráð­herra Indlands, og Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, fagna sögu­legum frí­versl­un­ar­samn­ingi í „hættu­legri heimi“. Mynd: X / Ursula von der Leyen

Stórt skref var tekið í dag í til­raunum Evr­ópu­sam­bands­ins (ESB) til að kúpla sig frá Banda­ríkj­unum og minnka ber­skjöldun gagn­vart Kína, í kjöl­farið á vopn­væð­ingu Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta á tollum og vax­andi yfir­burða Kína í iðn­fram­leiðslu.

Evr­ópu­sam­bandið kynnti í dag nýjan frí­versl­un­ar­samn­ing við Indland sem hefur verið 20 ár í vinnslu. Það ger­ist nokkrum dögum eftir að sam­komu­lag náð­ist um frí­versl­un­ar­samn­ing við Suður-Amer­íku­ríki, svo­kall­aðan Mercosur-samn­ing, sem Evr­ópu­þingið tók síðan afstöðu gegn með því að vísa honum fyrir Evr­ópu­dóm­stól­inn, með þeim afleið­ingum að hann frest­ast lík­lega um marga mán­uði eða jafn­vel ár.

Búist er við tvö­földun útflutn­ings ESB til Indlands vegna samn­ings­ins.

Samningur við Suður-Ameríku frystur

Evr­ópu­sam­band­inu hefur verið legið á hálsi að vera svifa­seint og þar af leið­andi mátt­lítið vegna reglu­verks og vald­dreif­ingar, sem tryggja á áhrif með­lima­ríkj­anna, á meðan Kína og Banda­ríkin geta hreyft sig hratt og beitt áhrifum sínum hindr­un­ar­lítið vegna valda­sam­þjöpp­unar.

Vend­ingar í alþjóða­við­skiptum virt­ust hafa breytt þessu, þegar ESB náði að loka samn­ingum við Mercosur-ríkin eftir 25 ára við­ræður í síð­ustu viku. „Við völdum frí­verslun fram yfir tolla, við völdum ábata­samt sam­starf fram yfir ein­angrun,“ sagði Ursula von der Leyen, for­seti fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, af því til­efni.

Forseti leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins, Antonio Costa, vís­aði þá beint til þess að þetta væri svar við því að „við­skipti væru notuð sem alþjóð­legt vopn“. Hann sagði samn­ing­inn „skila­boð um vörn frjálsra við­skipta, byggðra á reglum, um fjöl­hliða nálgun og alþjóða­lög sem grund­völl sam­skipta milli ríkja og svæða.“

Samningurinn við Indland

Indland og Evr­ópu­sam­bandið til­kynntu í dag um „samn­ing ald­ar­innar“, gríð­ar­stóran við­skipta­samn­ing sem skapar tveggja millj­arða manna markað, eftir tveggja ára­tuga samn­inga­við­ræður.

Leið­togar ESB og Narendra Modi for­sæt­is­ráð­herra von­ast til að samn­ing­ur­inn muni verja þá gegn áskor­unum frá tveimur stærstu hag­kerfum heims, Banda­ríkj­unum og Kína. Modi kall­aði samn­ing­inn „móður allra frí­versl­un­ar­samn­inga“.

Samn­ing­ur­inn mun lækka eða fella niður tolla á næstum 97 pró­sent af evr­ópskum útflutn­ingi, sem sparar allt að 4 millj­arða evra (4,75 millj­arða dala) árlega í tollum, að sögn sam­bands­ins sem telur 27 ríki.

„Samn­ingur ald­ar­innar,“ sagði Modi í höf­uð­borg­inni Nýju Delí, þar sem hann hitti Ursulu von der Leyen, for­seta fram­kvæmda­stjórnar Evr­ópu­sam­bands­ins, og Antonio Costa, for­seta leið­toga­ráðs Evr­ópu­sam­bands­ins.

„Þessi samn­ingur mun færa 1,4 millj­örðum Indverja og mörgum millj­ónum íbúa ESB fjöl­mörg tæki­færi,“ sagði Modi og bætti við að samn­ing­ur­inn „stæði fyrir um 25 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu heims­ins og þriðj­ungi af heims­við­skiptum“.

Indland framtíðarmarkaður

ESB hefur litið á Indland – fjöl­menn­asta ríki heims – sem mik­il­vægan fram­tíð­ar­markað.

„Evrópa og Indland skrifa sög­una í dag,“ sagði von der Leyen í yfir­lýs­ingu, degi eftir að hún og Costa voru heið­urs­gestir á lýð­veld­is­dags­há­tíð Indlands.

„Við höfum skapað frí­versl­un­ar­svæði tveggja millj­arða manna, þar sem báðir aðilar munu hagn­ast.“

Ísland er nú þegar með frí­versl­un­ar­samn­ing við Indland í gegnum EFTA, sem Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, und­ir­rit­aði fyrir hönd Íslands 10. mars 2024. Samn­ing­ur­inn tryggir „fullt toll­frelsi eða umtals­verða tolla­lækkun“ fyrir helstu útflutn­ings­vörur Íslands, en í inn­flutn­ingi er „að stærstum hluta um að ræða land­bún­að­ar­af­urðir sem ekki eru fram­leiddar á Íslandi, svo sem ýmsar teg­undir græn­metis, korn­metis, mat­ar­olíu, bauna, sæl­gætis og drykkj­ar­vara.“ 

„Sífellt óöruggari heimur“ 

Emb­ætt­is­menn ESB sögðu samn­ing­inn vera þann metn­að­ar­fyllsta sem Indland hefði nokkru sinni gert og að evr­ópsk fyr­ir­tæki myndu njóta góðs af svoköll­uðu „frum­kvöðla­for­skoti“.

Lyk­il­greinar Evrópu í land­bún­aði, bíla­iðn­aði og þjón­ustu munu hagn­ast, að þeirra sögn.

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    "The European Union is trying to take the lead in international trade."
    That is exactly the point: The EU has not given up its imperialist thinking and wants to "lead"! That is the opposite of what the EU commissioner Leyen called a "win-win" situation! Besides, had the US not given up on Europe as a foreign policy priority the EU wouldn't have sought India or China or the BRICS+ as trading partners on a different level! They were forced to act without another choice. That explains also why Merz went to India and why Starmer is in China as we speak! Its a farce!
    -3
    • TM
      Tómas Maríuson skrifaði
      Now to start with a fact: The UK is no longer in the EU, so when Starmer goes to China it is not a step of the EU.
      Then I like to point out that the Rule of Law is respected in the EU which means that "leading" is not the same as "being imperialist". Saying this I realize that the EU isn't holy and shure we can critizise one thing or other.
      But in trade negotiations of the EU protection of environment, democracy, human rights and working conditions always are discussed.
      2
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Endurnýjun Evrópu

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár