Þáði verktakagreiðslur og tók þátt í að afnema þær

Ólína Kjer­úlf Þor­varð­ar­dótt­ir, sett­ur rektor við Há­skól­ann á Bif­röst, þáði verk­taka­greiðsl­ur í gegn­um eign­ar­halds­fé­lag sitt fyr­ir kennslu. Mikl­ar deil­ur hafa ver­ið eft­ir að tek­ið var fyr­ir verk­töku fast­ráð­inna starfs­manna, að sögn for­vera henn­ar í starfi, en Ólína var hlynnt þeirri ákvörð­un að banna hana.

Þáði verktakagreiðslur og tók þátt í að afnema þær

Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir, settur rektor Háskólans á Bifröst, þáði samkvæmt gögnum sem Heimildin hefur undir höndum 3,4 milljónir í verktakagreiðslur frá háskólanum í gegnum eignarhaldsfélag sitt Lausnastein ehf. fyrir kennslu árið 2023 þegar hún var deildarforseti félagsvísindadeildar.

Ólína segir við Heimildina að greiðslurnar hafi hún fengið vegna kennslu veturinn 2022-23 sem hún hafði skuldbundið sig í áður en hún varð fastráðin við skólann. Hún segir enn fremur að einstaklingar hafi verið gerðir tortryggilegir vegna viðskipta sinna við háskólann, þrátt fyrir að háskólinn sjálfur hafi komið fyrirkomulaginu á. 

Sinnti kennslu og þáði verktakagreiðslur

„Þetta var verklag sem var viðhaft við Háskólann á Bifröst þangað til síðastliðið haust. Allir stundakennarar við skólann voru verktakar og stór hluti þeirra tók greiðslur í gegnum fyrirtæki,“ segir Ólína Kjerúlf og bætir við að greiðslurnar hafi miðast við gjaldskrá skólans á hverjum tíma fyrir sig. 

Hún skýrir að hún hafi byrjað við Háskólann á Bifröst sem …

Kjósa
20
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Náttúrubarnið í Sænautaseli
3
Viðtal

Nátt­úru­barn­ið í Sænauta­seli

Lilja Haf­dís Óla­dótt­ir á Merki á Jök­ul­dal líð­ur best í óbyggð­um og stend­ur vakt­ina í Sænauta­seli, þar sem hún tek­ur á móti gest­um með ný­bök­uð­um lumm­um. Eft­ir frá­fall móð­ur­inn­ar var hún kom­in í hús­mæðra­hlut­verk fimmtán ára göm­ul, auk þess að sinna bú­störf­um. Rúm­lega tví­tug varð hún móð­ir en gaf barn­ið til ætt­leið­ing­ar. Seinna eign­að­ist hún ann­að barn. Nú líð­ur henni best úti í nátt­úr­unni og í kring­um dýr­in, enda rollu­hvísl­ari sem var eitt sinn bjarg­að af hesti og get­ur séð í niða­myrkri.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Samherjabörnin greiddu lán foreldra sinna með eignarhlut í stærsta eiganda Samherja
3
Viðskipti

Sam­herja­börn­in greiddu lán for­eldra sinna með eign­ar­hlut í stærsta eig­anda Sam­herja

Lán­ið sem Þor­steinn Már Bald­vins­son og Helga Stein­unn Guð­munds­dótt­ir veittu börn­um sín­um til að kaupa nærri helm­ings hlut í Sam­herja af þeim hef­ur ver­ið gert upp. Börn­in, þau Bald­vin, for­stjóri Sam­herja, og Katla Þor­steins­börn eru nú orðn­ir með­eig­end­ur for­eldra sinna í fé­lög­un­um sem lán­uðu þeim fyr­ir kaup­un­um. Sam­þykkt­ir fé­lags­ins tryggja þeim fast­ar arð­greiðsl­ur úr K&B á hverju ári.
Halldór Jörgen Olesen
5
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár