Rósarstríð Samfylkingarinnar: „Ég hef alltaf þurft að leggja margfalt harðar að mér“

Félag innan Sam­fylk­ing­ar­innar hefur sagt sig úr fram­kvæmda­ráði flokks­ins og íhugar sér­fram­boð. Skiptar skoð­anir á félag­inu innan flokks­ins. Einn segir ekki öllum líða vel í Sam­fylk­ingu Kristrúnar Frosta­dóttur.

Rósarstríð Samfylkingarinnar: „Ég hef alltaf þurft að leggja margfalt harðar að mér“
Rós­ar­stríð Sam­fylk­ingin í Reykja­vík tekst á um upp­still­ingu á lista. Það er gömul saga og ný. Átökin gætu þó verið merki um átök um hug­mynda­fræði­lega stöðu flokks­ins.

„Lang­tíma­mark­miðið er að mark­aðs­setja Rósina sem alvöru mögu­leika fyrir jafn­að­ar­menn,“ segir Guð­mundur Ingi Þór­odds­son, for­maður lands­mála­fé­lags­ins Rós­ar­innar, aðild­ar­fé­lags Sam­fylk­ing­ar­innar, sem sagði sig úr full­trúa­ráði Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík á dög­unum.

Hvorki Guð­mundur Ingi, né vara­for­maður flokks­ins, Guð­mundur Árni Stef­áns­son, taka undir að hér sé um klofn­ing að ræða innan Sam­fylk­ing­ar­innar, þó for­maður Rós­ar­innar segir þetta vissu­lega klofn­ingi í fram­boðs­málum í Reykja­vík. 

Rósin vinnur nú hörðum höndum að því að fara í sér­stakt fram­boð eða ganga inn í annað fram­boð. Er þar er helst nefnt nýtt fram­boð til sög­unnar, Vor til vinstri sem nú heitir Vinstrið, en Guð­mundur Ingi segir félagið eiga í sam­tölum við fleiri flokka um fram­boð. Sitt sýn­ist hverjum í Sam­fylk­ing­unni, við­mæl­endur Heim­ild­ar­innar segja ýmist Rósina bölvað vand­ræða­fé­lag sem eigi rætur í átaka­stjórn­málum tíunda ára­tug­ar­ins og aðrir segja það mein­laust mál­funda­fé­lag sem ýki stærð sína fyrir hvert próf­kjör. Þá er varað við að upp­nám Rós­ar­innar sé mögu­lega …

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristín Guðnadóttir skrifaði
    Þessi maður virðist vera ég-um mig-frá mér-til mín týpan, dæmigerður íslenskur frekjuhundur sem sést ekki fyrir. En hann er ekki einn um það í pólitískri flóru landsins.
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Það er eins oghversem er geti komistinnáalþingiíslendinga bararettsísvona meðþviaðgefasigfram. Og lýsaviljasínum meðþaðaðaðkomastálista hjáeinhverjum stjórnmálaflokkunum þar er í framboði íkosningunumjá hversemer bara!!
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár