Veltir upp hvort innflytjendur á Spáni skaði hagsmuni Íslands

Snorri Másson, vara­for­maður Mið­flokks­ins, vill að dóms­mála­ráð­herra svari því hvort íslensk stjórn­völd þurfi að beita sér gegn opn­ari inn­flytj­enda­stefnu innan Schengen eða Evr­ópu­sam­bands­ins í ljósi íslenskra hags­muna.

Veltir upp hvort innflytjendur á Spáni skaði hagsmuni Íslands

Snorri Másson, vara­for­maður Mið­flokks­ins, hefur innt Þor­björgu Sigríði Gunn­laugs­dóttur dóms­mála­ráð­herra eftir því í skrif­legri fyr­ir­spurn hver afstaða hennar sé til aðgerðrar spænskra stjórn­valda að veita allt að 500 þús­und ein­stak­lingum „sem dvelja og starfa á Spáni án full­nægj­andi heim­ildar“ tíma­bundið dvalar- og atvinnu­leyfi að upp­fylltum skil­yrðum. Vill hann fá að vita hvort aðgerðin gæti haft áhrif á fram­kvæmd Schengen-sam­starfs­ins.

Vill Snorri þá fá að vita hvort ráð­herra telji að íslensk stjórn­völd þurfi að beita sér gegn opn­ari inn­flytj­enda­stefnu aðild­ar­ríkja Schengen-sam­starfs­ins eða Evr­ópu­sam­bands­ins „í ljósi hags­muna Íslend­inga“.

Tímabundið dvalarleyfi fyrir erlenda ríkisborgara

Í jan­úar var fjallað um það að slík áform væru uppi hjá rík­is­stjórn Spánar. Næðu þau fram að ganga fengju erlendir rík­is­borg­arar sem komu til Spánar fyrir árs­lok 2025 og gætu sýnt fram á minnst 5 mán­aða dvöl þar að sækja um dvalar- og atvinnu­leyfi til eins árs. Þá er gerð krafa um hreint sak­ar­vott­orð. Ráðherra inn­flytj­enda­mála þar í …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (7)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Kalla ég Snorra másonmásandi ekkeregvónaðuppnefnaannaðfólkþótt þaðhafiveriðgertmeðmig!eneinsogegsegimiðflokkurinnfelluralvegaðmínumskoðunumhúrrafyrirhopnum hannlengilifi!!
    0
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Alveg er ég honum Snorra másandi innilega sammála í þessum útlendinga málum sem Ísland stendur fyrir ídag svo sannarlega!!
    -1
  • Birgit Braun skrifaði
    Æjæ, ætlar Snorri ss að senda eiginkonuna sína og eða fjölskyldumeðlimur hennar " heim til sín"? Ég kann illa við svona skinhelgi.
    3
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Geyið að vera svona þjakaður af hræðslu við annað fólk.
    4
  • EGT
    Einar G Torfason skrifaði
    Mér er gróflega misboðið. Hafa Miðflokksmenn enga sómakennd?
    13
    • SIB
      Sigurður I Björnsson skrifaði
      Nei þeir hafa hana ekki, þetta er svona prjónabrókar fasismi.
      8
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Þessi Snorri Másson er eins og illa heppnuð prótótípa af Grok .
    8
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár