Bandaríkin slá met í halla á vöruskiptum

Tolla­stríð Donalds Trump nær ekki ávinn­ingi að sinni.

Bandaríkin slá met í halla á vöruskiptum
Hvíta húsið Tollar Trumps for­seta leiddu til þess að inn­flutn­ingur jókst til skamms tíma. Mynd: AFP

Vöru­skipta­halli Banda­ríkj­anna náði nýjum met­hæðum árið 2025, sam­kvæmt gögnum frá stjórn­völdum sem birt voru í dag, þrátt fyrir víð­tæka tolla sem Donald Trump for­seti lagði á á fyrsta ári sínu aftur í Hvíta hús­inu.

Vöru­skipta­halli Banda­ríkj­anna nam 1,24 billjónum dala, eða 152 billjónum króna, fyrir allt síð­asta ár og jókst lít­il­lega frá árinu 2024 í mesta halla sem mælst hefur í tölum við­skipta­ráðu­neyt­is­ins allt frá árinu 1960.

En vöru­skipta­hall­inn við Kína minnk­aði hins vegar á árinu þar sem inn­flutn­ingur Banda­ríkj­anna frá næst­stærsta hag­kerfi heims dróst saman um 30 pró­sent.

Þegar bæði vörur og þjón­usta voru tekin með í reikn­ing­inn minnk­aði heild­ar­við­skipta­halli Banda­ríkj­anna fyrir árið 2025 í 901,5 millj­arða dala (110 billjónum króna), úr 903,5 millj­örðum dala árið 2024.

Þetta var samt þriðji mesti halli sem mælst hefur.

Í des­em­ber­mán­uði jókst heild­ar­hall­inn meira en búist var við, eða um 32,6 pró­sent, í 70,3 millj­arða dala, …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár