Formaður borgarráðs biðst afsökunar á „klaufaskap“ við bókun um lóðabrask

Formaður borg­ar­ráðs segir bókun um lóða­brask hafa verið klaufa­skap og biðst afsök­unar í bréfi til tals­manns fast­eigna­þró­un­ar­fé­lags. „Ég ítreka að það var ekki okkar ætlun að kalla ykkur lóða­brask­ara,“ segir Alex­andra Briem í bréfi til Runólfs Ágústs­sonar.

Formaður borgarráðs biðst afsökunar á „klaufaskap“ við bókun um lóðabrask
Klaufa­skapur og lóða­brask Alex­andra Briem biður Runólf og Þorpið vist­fé­lag afsök­unar á klaufa­skap við bókun um lóða­brask.

Formaður borg­ar­ráðs og odd­viti Pírata í borg­ar­stjórn Reykja­víkur, Alex­andra Briem, biður athafna­mann­inn Runólf Ágústs­son, tals­mann Þorpsins Vist­fé­lags, afsök­unar á því að hafa ýjað að því að félag hans stæði í lóða­braski í bókun borg­ar­ráðs fyrir helgi.

Þetta kemur fram í svari hennar við pósti sem Runólfur sendi á alla borg­ar­full­trúa borg­ar­innar fyrir helgi. Heim­ildin hefur báða póstana undir höndum.

Áréttuðu skaðsemi lóðabrasks

Meiri­hluti borg­ar­ráðs sam­þykkti á fundi ráðs­ins á fimmtu­dag svokölluð aðila­skipti á lóð­inni Haka­bryggju 12 í Elliða­ár­vogi, en félag sem Runólfur er í for­svari fyrir, Þorpið vist­fé­lag, fékk lóð­ina í sínar hendur árið 2023. Fyrir það var lóðin í eigu Árlands ehf., og hafði verið síðan 2007.

Borg­ar­ráð sam­þykkti aðila­skiptin en bókun meiri­hlut­ans vakti athygli, ekki síst þar sem áréttuð var skað­semi lóða­brasks fyrir hús­næð­is­mark­að­inn á Íslandi.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Já það var meiri klaufaskapurinn þessi afsökunarbeiðni borgarfulltrúans. Ekki mjög atkvæðavænt í kosningum á komandi sumri.
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár