Samþykktu aftur lóðaframsal Þorpsins en bókuðu gegn lóðabraski

Meiri­hluti borg­ar­ráðs sam­þykkti að heim­ila Þorpinu 6 ehf að fram­selja lóðir í Elliða­vogi. Það er í annað skiptið sem sama félag fram­selur lóðir á tveimur árum, í fyrra skiptið hagn­að­ist það um millj­arða þó engin upp­bygg­ing væri hafin.

Samþykktu aftur lóðaframsal Þorpsins en bókuðu gegn lóðabraski
Borg­ar­stjórn Meiri­hluti borg­ar­stjórnar bók­aði sér­stak­lega um lóða­brask eftir að hún sam­þykkti lóða­fram­sal í annað sinn fyrir Þorpið 6 ehf Mynd: Golli

Meiri­hluti Reykja­vík­ur­borgar sam­þykkti á fundi borg­ar­ráðs í morgun að Þorpið 6 ehf fengi að selja áfram lóð­ina Haka­bryggju 12 í Elliða­ár­vogi til félags í eigu REIR verks ehf. Þetta er í annað skiptið á um tveimur árum sem sama félag, Þorpið 6 ehf., selur lóðir sem það hefur fengið úthlutað frá Reykja­vík­ur­borg. Í fyrra skiptið fékk Þorpið á annan millj­arð í sinn vasa fyrir sölu á lóða­rétt­indum í Ártúns­höfða þrátt fyrir að engin upp­bygg­ing væri hafin á svæð­inu. Upphæðin fyrir nýj­ustu við­skiptin er ekki til­greind í erind­inu sem er birt á vef Reykja­vík­ur­borgar, og gagn­rýnir odd­viti Fram­sókn­ar­flokks málið með sér­stakri bókun. 

Þá vekur athygli að meiri­hluti borg­ar­stjórnar, sem sam­anstendur af Sam­fylk­ingu, Pírötum og Sós­í­alista­flokki Íslands ásamt áheyrn­ar­full­trúum Flokks fólks­ins og Vinstri grænna, bókar sér­stak­lega um málið þar sem lóða­brask er gagn­rýnt. Þar kemur fram að flokk­arnir vinni að aðgerðum gegn lóða­braski og nefnir meiri­hlut­inn sam­starfs­hóp sem hefur unnið að …

Kjósa
19
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár