Frostið flækist fyrir úkraínskum herdrónum

Drón­ar, sem hafa reynst bæði Úkraínu­mönn­um og Rúss­um mik­il­væg­ir, þola illa það mikla frost sem nú er í Úkraínu. Í frost­inu verða sár líka fljótt ban­væn en of­kæl­ing og kal á út­lim­um eru al­geng.

Frostið flækist fyrir úkraínskum herdrónum
Kuldi Snævi þaktir lampar við bráðabirgðaminningarreit um fallna úkraínska og erlenda hermenn á Sjálfstæðistorginu í Kænugarði. Það hefur ekki verið jafn kalt á víglínu stríðsins frá því að það braust út með innrás rússneska hersins, fyrir fjórum árum. Mynd: Sergei SUPINSKY / AFP

Fyrr í vetur var sveit Alis að setja á loft dróna á víglínunni í Úkraínu í miklu frosti, þegar myndavélin fraus skyndilega. Það kom í veg fyrir að þeir gætu greint stöðuna og brugðist við yfirvofandi árás Rússa.

Hitastigið á um 1.200 kílómetra langri víglínunni hefur aldrei farið jafn lágt, frá því stríð Rússlands og Úkraínu hófst fyrir fjórum árum. Kuldanum fylgja aukin vandkvæði við notkun rafhlöðuknúinna dróna, sem gegna lykilhlutverki í hernaðaraðgerðum beggja fylkinga.

„Áhrifin á drónana okkar eru mjög neikvæð,“ sagði Ali, sem bað AFP um að nota kallmerki sitt, í samræmi við reglur hersins. „Rafhlöður tæmast hraðar, myndavélarnar og vírarnir frjósa, þeir ísa bara.“

Bæði rússneski og úkraínski herinn eru farnir að nota einfalda dróna í gríð og erg. Litlir könnunardrónar kanna stöðu óvinarins og geta varpað handsprengjum á skotmörk og hermenn, og greina jafnvel minnstu hreyfingu á jörðu niðri, á meðan aðrir eru hlaðnir sprengiefni og …

Kjósa
10
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskt kollagen framleitt á Blönduósi
5
Nýsköpun

Ís­lenskt kolla­gen fram­leitt á Blönduósi

Norð­an heiða, nán­ar til­tek­ið á Blönduósi, er ís­lenskt kolla­gen fram­leitt. Um er að ræða fyr­ir­tæk­ið Prot­is sem nýt­ir sér verk­smiðju Vil­ko þar á slóð­um, en um er að ræða sömu eig­enda­hópa að miklu leyti. Það er ým­is­legt í far­vatn­inu hjá þeim, með­al ann­ars sam­starf við drykkjar­vöru­fram­leið­end­ur er­lend­is sem eig­and­inn bind­ur mikl­ar von­ir við.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár