Segir stjórnarformann Sólheima fara með lygar um sig

Ingi­björg Rósa Björns­dóttir, fyrr­ver­andi starfs­maður Sólheima segir stjórn­ar­for­mann Sólheima ekki geta hrakið það sem hann segi „til­hæfu­lausar ásak­anir og órök­studdar dylgjur“ í grein­ar­skrifum hennar um mál­efni stað­ar­ins.

Segir stjórnarformann Sólheima fara með lygar um sig

Ingi­björg Rósa Björns­dóttir, fyrr­ver­andi starfs­maður Sólheima, segir Sigurjón Örn Þórsson, stjórn­ar­for­mann Sólheima, hafa vænt sig um lygar í grein Heim­ild­ar­innar frá því fyrr í mán­uð­inum.

Lygarnar segir hún fel­ast í ummælum Sig­ur­jóns um grein hennar um mál­efni Sólheima sem birt­ist síð­ast­liðið haust. Þar rakti hún reynslu sína af staðnum, hvernig fram­kvæmda­stjóra­skipti hefðu haft áhrif á mannauðs­mál og fann vinnu­brögðum stjórnar margt til for­áttu.

Við Heim­ild­ina hafði Sigurjón það um grein­ina að segja að hann harm­aði það að starfs­maður færi fram á opin­berum vett­vangi „með til­hæfu­lausar ásak­anir og órök­studdar dylgjur af þessu tagi.“ Ingi­björg segir hins vegar að Sigurjón færi engan rök­stuðn­ing fyrir yfir­lýs­ingum sínum um það sem hún haldi fram. Hann hafi ekki hrakið neitt sem hún hafi haldið fram í grein sinni. „Hann er ekki með nein dæmi, engar bók­anir.“

Fyrr í mán­uð­inum vildi Sigurjón enn fremur meina að örfáir starfs­menn hefðu …

Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár