Sautján hætt ári eftir framkvæmdastjóraskipti

Nokkrir starfs­menn Sólheima í Gríms­nesi hafa lýst yfir óánægju með stjórn­ar­hætti síðan fram­kvæmda­stjóra var skipt út fyrir ári og nokkur fjöldi hefur sagt skilið við stað­inn. „Það er bara skelfi­legt ástand,“ segir starfs­maður um breyt­ing­una á starfsanda. Stjórn­ar­for­maður Sólheima segir hins vegar mikla ánægju með rekst­ur­inn og starfs­manna­velt­una ekki óeðli­lega.

Sautján hætt ári eftir framkvæmdastjóraskipti
Líkaði við Facebook-færslu Fyrr­ver­andi starfs­maður segir fólki hafa verið veitt til­tal fyrir hegðun sína á sam­fé­lags­miðlum. Mynd: Sólheimar

Samkvæmt upp­lýs­ingum Heim­ild­ar­innar hafa sautján starfs­menn sagt starfi sínu lausu eða verið reknir á Sól­heimum í Gríms­nesi á því ári sem liðið er frá brott­hvarfi Kristins Ólafs­sonar úr starfi fram­kvæmda­stjóra. Samkvæmt árs­reikn­ingi fyrir árið 2024 var með­al­fjöldi starfs­manna Sólheima ses. 74, en tekur það til­lit til fleira starfs­fólks en starfar innan félags­þjón­ust­unnar þar sem starfs­manna­veltan mun vera mest.

„Þetta er mikil starfs­manna­velta,“ segir Hall­björn V. Fríðhólm, þroska­þjálfi sem sagt var upp í októ­ber síð­ast­liðnum eftir átta ára starf á Sól­heimum. „Þetta er þannig vinna að það er mikil starfs­manna­velta en miðað við það hefur verið stöð­ug­leiki und­an­farin ár.“

Sigurjón Örn Þórsson, stjórn­ar­for­maður Sólheima, segir hins vegar að ekki sé um óeðli­lega starfs­manna­veltu að ræða. „Vissu­lega hafa nokkrir starfs­menn horfið á braut, en það er ekki óeðli­legt þegar breyt­ingar eru gerðar. Aðeins einum starfs­manni hefur verið sagt upp frá því nýr fram­kvæmda­stjóri tók við störfum. Þá var einn starfs­maður …

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár