Forsetafrúin skýrir tengsl sín við innsta hring Epsteins

Dor­rit Moussai­eff, fyrr­ver­andi for­setafrú Ís­lands, var bæði vin­kona sam­verka­konu Jef­freys Ep­stein og svo auð­manns­ins sem fjár­magn­aði Ep­stein síð­ustu ár­in. Dor­rit hef­ur nú svar­að spurn­ing­um um tengsl­in.

Forsetafrúin skýrir tengsl sín við innsta hring Epsteins
Gengu út Dorrit Moussaieff segir að hún og forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, hafi gengið út úr herbergi um leið og Jeffrey Epstein birtist.

Dorrit Moussaieff, sem var forsetafrú Íslands árin 2003 til 2016, hefur nú svarað spurningum um tengsl hennar við Jeffrey Epstein og Ghislaine Maxwell, sem skipulögðu mansal og kynferðisbrot á ungum stúlkum og konum.  

Forsetafrúin fyrrverandi kemur fyrir í tveimur tölvupóstum í Epstein-skjölunum í þriðju persónu. Þeir gefa til kynna að Dorrit hafi verið nokkuð kunnug Epstein, en hún var vinkona Ghislaine Maxwell og sótti meðal annars 51 árs afmælisveislu hennar í London 2013, þar sem Andrés prins var viðstaddur ásamt fleirum. 

Engin bein samskipti hafa hins vegar fundist í gögnunum, sem fyrst og fremst ná yfir tölvupóstsendingar, og ekkert hefur komið fram sem bendlar Dorrit eða Ólaf Ragnar við að hafa þegið greiðasemi hans. Spurningar hafa hins vegar vaknað vegna samhengis umræðunnar um forsetafrúna í Epstein-skjölunum. 

Forsetahjónin yfirgáfu herbergið

Dorrit segir í svörum sínum sem birtast í vefmiðlinum Mannlífi að hún hafi forðast með öllu að hitta eða ræða við Jeffrey Epstein.

Síðast þegar hún tjáði sig um tengslin, árið 2019, sagði Dorrit hins vegar í samtali við DV: „Það var ekkert furðulegt við hann.“

Nú segir hún að Epstein hafi verið vingjarnlegur nágranni, en hún hafi haldið sig fjarri. „Einu samtölin sem ég hef átt við Jeffrey Epstein voru varðandi lyftu í byggingunni okkar sem virkaði ekki, þar sem hann var svo vingjarnlegur að bera upp farangurinn fyrir mig,“ segir Dorrit við Mannlíf.

„Ég krafðist þess að við yfirgæfum bæði herbergið þegar í stað.“

Engu að síður hafi hún yfirgefið herbergi um leið og hann gekk inn, þegar hún mætti honum með Ólafi Ragnari Grímssyni forseta. Þar svarar hún spurningu um hvort hún hafi hitt Epstein ásamt Ólafi Ragnari. „Já, við hittumst við sama tækifæri fyrir 25 árum. Ég krafðist þess að við yfirgæfum bæði herbergið þegar í stað.“ Þetta hafi verið síðasta skiptið sem hún hitti Epstein.

Það hafi verið vegna þess að Epstein hafi verið „slepjulegur“. Hún segir atvikið hafa átt sér stað í „húsi vinar í Bandaríkjunum“.

Ólafur Ragnar sagði frá því í viðtali við Fréttablaðið árið 2019 að hann hefði aldrei hitt Epstein.

Spurð hvers vegna hún forðaðist Epstein, þrátt fyrir að hafa sagt að ekkert óvenjulegt væri við hann, segist Dorrit hafa öðlast innsæi til að meta hvort fólk sé traustsins vert, þegar hún starfaði sem barn í verslun föður síns í Jerúsalem, skartgripasalans Shlomo Moussaieffs, sem síðar átti eftir að verða meðal ríkustu manna Bretlands. 

Nágranni Epsteins

Árið 2019 kom fram að símanúmer merkt Dorrit hafi verið í símaskrá Jeffreys Epstein. Hún svaraði þá DV og kvaðst hafa verið nágranni Epsteins í London á 8. og 9. áratugnum. 

„Jeffrey Epstein bjó í sömu götu og ég í London einhvern tímann á milli 1978 og 1983. Við áttum marga sameiginlega kunningja. Það er möguleiki á því að á einhverjum tímapunkti hafi hann verið með símanúmerið mitt,“ sagði Dorrit þá. 

Í svörum til Mannlífs staðfestir hún að símanúmerið sé rétt. Þar segir Dorrit að Epstein hafi að líkindum fengið símanúmer hennar, sem birtist í tengiliðaskrá hans, fyrir ríflega fjörtíu árum, þegar hún var nágranni hans í London. Símanúmerið sem birtist í tengiliðaskránni er hins vegar með svæðisnúmer í London sem var ekki innleitt fyrr en um aldamótin, eða fyrir 26 árum, skömmu áður en hún segist hafa hitt Epstein síðasta sinni og yfirgefið herbergið ásamt Ólafi Ragnari Grímssyni forseta.

Dorrit segist hafa þekkt alla í húsinu, enda hafi þar aðeins verið fimm íbúðir. Hún segist þó ekki hafa gert annað en að heilsa og kveðja Epstein, auk þess að ræða í eitt skipti við hann um bilaða lyftu. Þrátt fyrir þetta sá nýaldargúrúinn Deepak Chopra ástæðu til að senda Epstein tölvupóst um að Dorrit og Ólafur Ragnar væri í Aspen og vísaði til þeirra eingöngu sem: „Dorrit og íslenski eiginmaður hennar“. 

Chopra átti í margvíslegum samskiptum við Epstein og í einum þeirra segir hann: „Komdu með stelpurnar þínar.“ 

Við innsta hring Epsteins

Dorrit Moussaieff hefur í áratugi verið viðloðandi félagslíf efri stéttar Bretlands. Auðæfi föður hennar voru árið 2011 metin á 37 milljarða íslenskra króna, til viðbótar við ómetanlegt safn fornmuna sem tengjast Biblíunni og Miðausturlöndum.

Að hluta getur það útskýrt hvers vegna svo vill til að Dorrit er í vinfengi við tvær af mestu lykilpersónunum í sögunni af Jeffrey Epstein. 

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Afsökunarbeiðnir, afsagnir, konungleg reiði: Afleiðingar nýjustu Epstein-skjalanna
SkýringEpstein-skjölin

Af­sök­un­ar­beiðn­ir, af­sagn­ir, kon­ung­leg reiði: Af­leið­ing­ar nýj­ustu Ep­stein-skjal­anna

Ný birt­ing Ep­stein-skjala dreg­ur fram víð­tæk og nán­ari tengsl þekktra valda­manna og áhrifa­fólks við kyn­ferð­is­brota­mann­inn látna. Af­sak­an­ir, af­sagn­ir og kröf­ur um rann­sókn fylgja í kjöl­far­ið, með­al ann­ars hjá kon­ungs­fjöl­skyld­um, stjórn­mála­mönn­um og emb­ætt­is­mönn­um í Evr­ópu og Banda­ríkj­un­um.

Mest lesið

Ari naut skattfríðinda í Portúgal
2
Stjórnmál

Ari naut skatt­fríð­inda í Portúgal

Ari Edwald, sem skip­ar fyrsta sæti á lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík, fékk stöðu sér­fræð­ings við flutn­inga lög­heim­il­is til Portúgal sem veitti hon­um ým­is skatt­fríð­indi. Hann gekk í des­em­ber frá kaup­um að íbúð í Garða­bæ fyr­ir 183 millj­ón­ir króna en flutti í gær lög­heim­ili sitt í leigu­íbúð lög­manns í mið­borg­inni. „Það er bráða­birgð­ar­ráð­stöf­un,“ seg­ir Ari.
Hver er raunverulegur fjöldi kvenna á örorkulífeyri?
5
Staðreyndavaktin

Hver er raun­veru­leg­ur fjöldi kvenna á ör­orku­líf­eyri?

Því hef­ur ver­ið hald­ið fram að allt að 23 pró­sent kvenna sé á ör­orku­líf­eyri hér á landi. Hið rétta er að 13,5 pró­sent kvenna eru á ör­orku- eða end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyri og 8 pró­sent karla. Hlut­fall milli kvenna og karla á ör­orku­líf­eyri hef­ur hald­ist það sama í ára­tugi en ör­orku- og end­ur­hæf­ing­ar­líf­eyr­is­þeg­um hef­ur al­mennt fjölg­að.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Sautján hætt ári eftir framkvæmdastjóraskipti
4
Innlent

Sautján hætt ári eft­ir fram­kvæmda­stjóra­skipti

Nokkr­ir starfs­menn Sól­heima í Gríms­nesi hafa lýst yf­ir óánægju með stjórn­ar­hætti síð­an fram­kvæmda­stjóra var skipt út fyr­ir ári og nokk­ur fjöldi hef­ur sagt skil­ið við stað­inn. „Það er bara skelfi­legt ástand,“ seg­ir starfs­mað­ur um breyt­ing­una á starfs­anda. Stjórn­ar­formað­ur Sól­heima seg­ir hins veg­ar mikla ánægju með rekst­ur­inn og starfs­manna­velt­una ekki óeðli­lega.
Ari naut skattfríðinda í Portúgal
5
Stjórnmál

Ari naut skatt­fríð­inda í Portúgal

Ari Edwald, sem skip­ar fyrsta sæti á lista Mið­flokks­ins í Reykja­vík, fékk stöðu sér­fræð­ings við flutn­inga lög­heim­il­is til Portúgal sem veitti hon­um ým­is skatt­fríð­indi. Hann gekk í des­em­ber frá kaup­um að íbúð í Garða­bæ fyr­ir 183 millj­ón­ir króna en flutti í gær lög­heim­ili sitt í leigu­íbúð lög­manns í mið­borg­inni. „Það er bráða­birgð­ar­ráð­stöf­un,“ seg­ir Ari.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár