Íslensku fyrirtæki líkt við hertæknifyrirtækið Palantir

Stofn­end­ur ís­lenska hug­bún­að­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Strat­is vilja ekki taka und­ir nafn­bót­ina „Pal­ant­ir Evr­ópu“ en hug­bún­að­ur þess hef­ur ver­ið not­að­ur af Úkraínu­her í drón­ar­hern­að. Smári McCart­hy, fyrr­ver­andi þing­mað­ur Pírata, er stofn­andi en sjóð­ur­inn Darkst­ar, sem sér­hæf­ir sig í hern­að­ar­mál­um, fjár­fest­ir.

Íslensku fyrirtæki líkt við hertæknifyrirtækið Palantir
Fjárfesting frá Darkstar Ingvar Helgason og Smári McCarthy standa sitt hvorum megin við Ragnar Sass, stofnanda Darkstar fjárfestingasjóðsins, fyrir miðju.

Íslenska hugbúnaðarfyrirtækið Stratis hefur fengið fjármagn frá eistneska fjárfestingasjóðnum Darkstar sem sérhæfir sig í varnar- og hernaðarmálum. Hugbúnaðurinn hefur verið notaður í drónahernað Úkraínuhers gegn innrás Rússa.

Haukur Már Helgason rithöfundur vekur athygli á þessu í grein í Dagfara, tímariti Samtaka hernaðarandstæðina, og í greinum á vefsíðu sinni þar sem Smári McCarthy, annar stofnenda Stratis, svarar einnig spurningum hans um verkefni þess. Telst það til nokkurra tíðinda að íslenskt fyrirtæki framleiði hergögn.

Hinn stofnandinn er Ingvar Helgason, en í viðtali við hann í miðlinum Resilience Media, sem sérhæfir sig í umfjöllunum um varnar- og hernaðarmál, er Stratis kallað „dularfullt íslenskt nýsköpunarfyrirtæki“ sem byggir „Palantir fyrir Evrópu“. Palantir er bandarískt hugbúnaðarfyrirtæki sem stjórnað er af milljarðamæringuum Peter Thiel og Alex Karp og hannar hugbúnað fyrir njósna- og hernaðarstarfsemi sem hefur meðal annars verið notaður af Ísraelsher í Gaza.

Í viðtalinu gerir Ingvar lítið úr þessari samlíkingu. „Þetta er ekki …

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
1
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aft­ur í hjúkr­un­ar­fræði eft­ir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­il­ar héldu að Björn Ólaf­ur Har­alds­son væri út­úr­dóp­að­ur þeg­ar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þeg­ar áfall­ið reið yf­ir og þurfti ít­rek­að að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­un­um. Nú stefn­ir hann á að klára nám­ið og koma sterk­ari til baka.
Reykjavíkurborg takmarkar aðgengi að tónlistarnámi
3
Tónlist

Reykja­vík­ur­borg tak­mark­ar að­gengi að tón­list­ar­námi

Þrátt fyr­ir stefnu Reykja­vík­ur­borg­ar um jafn­an rétt til list­sköp­un­ar lýsa skóla­stjórn­end­ur tón­list­ar­skóla þung­um áhyggj­um af þró­un mála. Ald­urstak­mörk hafi orð­ið til þess að vísa þurfti nem­end­um úr námi og aðr­ir kom­ist aldrei að. Sí­fellt sé þrengt að starf­semi tón­list­ar­skóla þar til þeir verði ann­að­hvort að sam­ein­ast eða loka.

Mest lesið í mánuðinum

Katla sem breytti heilbrigðiskerfinu
1
ViðtalLífið á Grensás

Katla sem breytti heil­brigðis­kerf­inu

Eng­inn á Ís­landi hef­ur lif­að af jafn al­var­leg­an mænusk­aða og Katla Guðna­dótt­ir sem lenti í dul­ar­fullu bíl­slysi 22 ára göm­ul. Hún er föst á Grens­ás­deild þar sem kerf­ið hef­ur ekki af­greitt beiðni henn­ar um heima­þjón­ustu. Bar­átta henn­ar hef­ur þeg­ar skil­að for­dæma­lausri ákvörð­un í heil­brigð­is­ráðu­neyt­inu en oft líð­ur henni eins og fólki hefði þótt það auð­veld­ara ef hún hefði ekki lif­að slys­ið af.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár