Verðbólga dró tennurnar úr tekjuvexti heimila

Þó að ráð­stöf­un­ar­tekjur íslenskra heim­ila hafi vaxið um 6,8 pró­sent árið 2025 nam kaup­mátt­ar­aukn­ing ráð­stöf­un­ar­tekna á mann þó aðeins 1,2 pró­sent á árinu. Verð­bólgan át upp stærstan hluta auk­inna ráð­stöf­un­ar­tekna.

Verðbólga dró tennurnar úr tekjuvexti heimila
Hverfu Tekju­aukn­ing heim­il­anna hefur að stærstum hluta horfið í verð­hækk­anir á vörum og þjón­ustu. Mynd: Golli

Ráð­stöf­un­ar­tekjur íslenskra heim­ila, það er þær tekjur sem standa eftir þegar búið er að draga frá skatta og taka til­lit til bóta og ann­arra til­færslna, juk­ust um 6,8 pró­sent árið 2025 sam­kvæmt bráða­birgða­tölum Hag­stof­unnar.

Að teknu til­liti til verð­lags­þró­unar nam aukn­ing kaup­máttar ráð­stöf­un­ar­tekna á mann, sem mælir hversu mikið er hægt að kaupa fyrir tekj­urnar, þó aðeins 1,2 pró­sentum á árinu.

Kaup­mátt­ar­aukn­ing ráð­stöf­un­ar­tekna hefur aðeins einu sinni verið minni á síð­ustu tíu árum.

Mest fer upp í verðbólgu

Ráð­stöf­un­ar­tekjur á mann, sem sýna hversu háar tekj­urnar eru að jafn­aði á hvern íbúa, námu rúm­lega 6,4 millj­ónum króna og juk­ust um 5,4 pró­sent milli ára. Á sama tíma hækk­aði vísi­tala neyslu­verðs, sem mæli­kvarði verð­bólgu, um 4,1 pró­sent.

Stór hluti tekju­aukn­ing­ar­innar fór því í að mæta verð­hækk­unum.

Heild­ar­tekjur heim­il­anna, sem eru allar tekjur áður en skattar og til­færslur eru teknar með í reikn­ing­inn, juk­ust um 7,3 pró­sent á árinu og …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár