Telur að aðild kosti 10-15 milljarða á ári

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir utan­rík­is­ráð­herra segir það mat ráðu­neyt­is­ins að kostn­aður við aðild að Evr­ópu­sam­band­inu sé 10-15 millj­arðar króna á ári. Á móti falli niður kostn­aður við þátt­töku í EES-sam­starf­inu sem sé um 8 millj­arðar árlega.

Nettó­kostn­að­ar­aukn­ing við að ganga inn í Evr­ópu­sam­bandið gæti numið allt að sjö millj­örðum króna á ári. Þetta kom fram á opnum fundi utan­rík­is­mála­nefndar með Þorgerði Katrínu Gunn­ars­dóttur utan­rík­is­ráð­herra á Alþingi í morgun.

Upplýsti Þor­gerður að kostn­aður við aðild nemi á bil­inu 10-15 millj­örðum árlega, sam­kvæmt mati utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins, en á móti falli niður kostn­aður við þátt­töku í EES, sem nemi árlega um átta millj­örðum.

„Við höfum meðal ann­ars verið að skoða til dæmis Finna, þeir borga nettó 0,2 til 0,3 pró­sent af vergri fram­leiðslu til Evr­ópu­sam­bands­ins,“ sagði hún í svari við spurn­ingu Þórdísar Kol­brúnar Reyk­fjörð Gylfa­dóttur, þing­konu Sjálf­stæð­is­flokks. Sam­bæri­legur kostn­aður 

Þor­gerður Katrín setti það svo í sam­hengi við vexti af skuldum heim­il­anna. „Hvert pró­sent vegna upp­töku evru myndi skila okkur – hvert pró­sent – myndi skila okkur 32 millj­örðum í lægri vexti,“ sagði hún. 

Kjósa
13
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár