Inn­flytj­endur í sigt­inu Ulf Kristers­son, for­sæt­is­ráð­herra Sví­þjóðar og leið­togi Modera­terna, vinnur með Sví­þjóð­ar­demókrötum, sem eru and­vígir inn­flytj­endum. Hér er hann á leið á leið­toga­fund Evr­ópu­sam­bands­ins í Brussel 19. mars. Mynd: AFP

Vísa innflytjendum úr landi sem ekki lifa „heiðarlegu lífi“

Sænska rík­is­stjórnin leggur fram nýtt frum­varp sem heim­ilar brott­vísun inn­flytj­enda vegna skap­gerðar, yfir­lýs­inga og „óheið­ar­legs“ líf­ernis. Áhyggjur vakna af tján­ing­ar­frelsi og mis­munun eftir upp­runa.

Sænska rík­is­stjórnin til­kynnti í dag að hún myndi leggja fram frum­varp sem gerir kröfu um að inn­flytj­endur lifi „heið­ar­legu lífi“ ellegar eigi þeir á hættu að vera vísað úr landi.

Hægri­st­jórn lands­ins, sem tók við völdum árið 2022 með lof­orðum um að taka hart á inn­flytj­enda­málum, reynir nú að koma í gegn fjölda umbóta á ýmsum sviðum í skyndi fyrir þing­kosn­ingar í sept­em­ber.

Nýja krafan myndi auð­velda aft­ur­köllun dval­ar­leyfa inn­flytj­enda.

„Það er sjálf­sagt að fara eftir lögum og reglum, en það hlýtur líka að vera sjálf­sagt að við gerum okkar besta til að lifa ábyrgu lífi og skaða ekki landið okkar,“ sagði Johan Forssell, ráð­herra inn­flytj­enda­mála, á blaða­manna­fundi.

„Ef þér fyr­ir­ferst til dæmis að greiða skuldir þínar, ef þú ferð ekki eftir ákvörð­unum sænskra yfir­valda, ef þú svindlar á bóta­kerf­inu, ef þú svindlar til að fá sænskt dval­ar­leyfi ... þá áttu ekki rétt á …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár