Seðlabankinn varar við áhættu á húsnæðismarkaði

Framboð íbúða hefur snar­auk­ist á síð­ustu mán­uðum þó að vís­bend­ingar séu um að bygg­ing­ar­að­ilar séu að seinka því að klára nýjar íbúðir. Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands telur að þótt van­skil séu enn lítil auki sam­spil hárra vaxta og lengri sölu­tíma áhættu í grein­inni.

Seðlabankinn varar við áhættu á húsnæðismarkaði

Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefnd Seðla­banka Íslands bendir á vax­andi áhættu á hús­næðis- og bygg­inga­mark­aði. Í nýrri yfir­lýs­ingu nefnd­ar­innar kemur fram að hús­næð­is­verð sé enn hátt á flesta mæli­kvarða, þrátt fyrir að hafa lækkað að raun­virði. Framboð íbúða hafi auk­ist og sölu­tími lengst, sér­stak­lega þegar kemur að nýbygg­ingum.

Á sama tíma hafi skuldir bygg­inga­geirans við banka­kerfið auk­ist á síð­ustu miss­erum. Þótt van­skil séu enn lítil segir nefndin að sam­spil hárra vaxta og lengri sölu­tíma auki áhættu í grein­inni. Lán­veit­endur þurfi því að vera vak­andi fyrir þró­un­inni, að mati nefnd­ar­innar.

Ný gögn frá HMS styðja við mat Fjár­mála­stöð­ug­leika­nefndar um að aukin áhætta sé að mynd­ast á hús­næðis- og bygg­inga­mark­aði, einkum vegna hraðrar fram­boðs­aukn­ingar og hæg­ari sölu.

Átján prósenta aukning íbúða í sölu

Framboð íbúða hefur auk­ist veru­lega frá ára­mótum. Í byrjun jan­úar voru um 5.100 íbúðir til sölu á land­inu en í byrjun mars voru þær orðnar rúm­lega …

Kjósa
8
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • GRR
    Gísli Ragnar Ragnarsson skrifaði
    Væri íbúðamarkaðurinn hér sæmilega skilvirkur skyldi maður ætla að markaðsaðstæður eins og þær sem hér er lýst ættu að valda nokkuð skarpri nafnverðslækkun á íbúðahúsnæði en slíkt virðist ekki hafa gerst.
    0
  • JBÓ
    Jón Brynjólfur Ólafsson skrifaði
    Þetta er nú meiri fréttin. Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands er að senda út viðvörun um að aðgerðir nefndarinnar eru að skaða samfélagið. Ætli að nefndarmenn séu ómeðvitaðir um að þeir eru vandamálið, þeir eru með aðgerðum sínum að millifæra eignir frá þeim sem eru í fjárhagslegum vanda til þeirra sem eiga miklu meira en nóg. Þetta hefur afleiðingar. Hef heyrt að svona gjörningur / aðgerðir séu kallaður þjófnaður. Þessi della er sennilega réttlætt með einhverjum kenningum sem heldur nefndarmönnum í furðulegri spennitreyju. Það væri upplýsandi ef blaðamenn mundu telja öll þau „sérfræðingaálit“ sem birtast í fjölmiðlum í hverri viku um efnahagsvanda og svo yfirlit um fréttir um hvort einhver sé raunverulega að gera eitthvað að gagni, til að leysa úr óreiðunni. Allt eru þetta nú mannleg óreiða sem menn skapa meðvitað, oft með frekju og yfirgangi til að tryggja sérhagsmuni.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár