„Ef þetta væri karlmaður værum við líklega ekki að hlusta á þessa hlaðvarpsþætti“

Afbrota­fræðingur segist ekki sammála hneykslun sumra á viðtali við Margréti Höllu Löf sem var dæmd fyrir að bana föður sínum. Hún segir að málið sé einstakt á margan hátt og forvitni eðlileg.

Margrét Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum.
Margrét Löf var dæmd fyrir að bana föður sínum.

Margrét Halla Hans­dóttir Löf fór fram á að réttar­höldum yfir henni væri haldið fyrir luktum dyrum en steig síðan fram í viðtali í útvarps­þætti um málið á RÚV. Afbrota­fræðingurinn Margrét Valdimars­dóttir, dósent við Háskóla Íslands, segir að það hafi komið á óvart að dómari hafi fallist á að loka réttar­höldunum á sínum tíma.

Margrét Valdi­mars­dóttirAfbrota­fræð­ing­ur­inn Margrét er ekki sam­mála hneykslun almenn­ings, en finnst tíma­setn­ingin RÚV þátta umhugs­un­ar­verð.

Margrét segir almenna reglu vera að umfjöllun í fjöl­miðlum þegar kemur að sakamálum hafi áhrif, þótt erfitt sé að meta slíkt. Hún setur spurninga­merki við tíma­setningu viðtalsins en málið bíður þess að vera tekið fyrir í Lands­rétti.

„Tíma­setning umfjöllunarinnar er óheppileg þegar málinu er ekki lokið,“ segir Margrét. Flest gögn hnígi að því að umfjöllun um sakamál hafi áhrif á almennings­álitið.

Spurð hvort það sé í raun eðlis­munur á …

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Súlunesmálið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár