Lögreglan segir forsíðufrétt Morgunblaðsins ranga

Ekkert bendir til þess að þeir sem lög­reglan hand­tók vegna alvar­legrar lík­ams­árásar hafi tengsl við Hamas-sam­tökin. Lög­reglan segir rangt að þeir séu á lista alþjóða­lög­regl­unnar yfir grun­aða hryðju­verka­menn. Morg­un­blaðið greindi fyrst frá þessu sem „óstað­festar fregnir“ en full­yrti svo.

Lögreglan segir forsíðufrétt Morgunblaðsins ranga
For­síðu­frétt Morg­un­blaðs­ins Lög­reglan segir ekk­ert benda til tengsla manna sem grun­aðir eru um lík­ams­árás við Hamas-sam­tökin.

Lög­reglan á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur sent út til­kynn­ingu til leið­rétt­ingar á frétta­flutn­ingi Morg­un­blaðs­ins um að Hamas-liðar á lista alþjóða­lög­regl­unnar yfir grun­aða hryðju­verka­menn hafi tek­ist á í Túna­hverfi í Reykja­vík.

Morg­un­blaðið birti frétt sína á for­síðu blaðs­ins í gær með fyr­ir­sögn­inni „Hamas-liðar á Höfða­torgi“. Sagði í henni að hluti þeirra manna sem hand­teknir voru eftir grófa lík­ams­árás í bíla­kjall­ara á Höfða­torgi í Reykja­vík sé grun­aður um að tengj­ast palest­ínsku sam­tökum Hamas. Í far­símum þeirra hafi fund­ist myndefni sem sýni þá með­höndla fjöl­skotariffla af gerð­inni AK-47.

„Vegna umfjöll­unar Morg­un­blaðs­ins og mbl.is um rann­sókn Lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á alvar­legri lík­ams­árás í Túna­hverfi í Reykja­vík í síð­ustu viku vill emb­ættið taka sér­stak­lega fram að á þessu stigi bendir ekk­ert til þess að þeir sem hafa verið hand­teknir í mál­inu hafi tengsl við Hamas-sam­tökin,“ sagði í yfir­lýs­ingu lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í dag. „Þá er það enn fremur rangt að hinir sömu séu á lista …

Kjósa
35
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Ekkert sem kemur á óvart hjá sölumönnum óttans. Það er alveg ástæða fyrir því að ég hef hvorki lesið blaðið né skoðað síðuna þeirra í bráðum fjögur ár. Því þar er ekkert að sækja nema ef maður vill skoða þennan kima samfélagsins með gleraugum sálfræði og félagsfræði til að skilja hvernig Cult verða til og hvernig ríkir og valdamiklir aðilar hafa hag af fullkominni upplýsinga óreiðu.
    3
    • Greg Hill skrifaði
      Hvaðan sem aðalpersónurnar komu virðist þetta vera nokkuð hættulegt svæði: Mér varð nokkrum sinnum mjög óþægilegt á strætóskýlinu rúgbrauðgerðin vegna þess að - í þeim tilfellum sem ég upplifði - arabískir - ungmenni hræktu og börðust. Það er rangt að nota þjóðernisstimpla sem pólitískt bragð, en það hjálpar ekki heldur að hunsa gögn um hver gerir hvað. Sorglegt að svona hlutir skuli gerast.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

2
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
3
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár