Meðal þekktra nafna sem koma fyrir í nýjum skjalaskammti frá bandaríska dómsmálaráðuneytinu um látna, dæmda kynferðisbrotamanninn Jeffrey Epstein, eru milljarðamæringar og stjórnmálamenn. Þar á meðal eru: Donald Trump forseti, Bill Gates, meðstofnandi Microsoft, Howard Lutnick, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna, og breski milljarðamæringurinn Richard Branson.
Hér eru helstu atriðin um ummæli um fræga fólkið, en engin staðfest lögbrot eru tengd þeim.
Dorrit Moussaieff
Fyrrverandi forsetafrú Íslands virðist hafa verið ágætlega kunnug Jeffrey Epstein. Að minnsta kosti nægilega vel til þess að í tölvuósti til Epsteins er vísað eingöngu til fornafns Dorritar þegar honum er sagt að „Dorrit og eiginmaður hennar frá Íslandi“ hafi verið stödd á St. Regis Aspen Resort hótelinu í Colorado í Bandaríkjunum þar sem sendandinn, rithöfundurinn Deepak Chopra, segist munu leiða hugleiðslu fyrir hóp fólks. Dorrit hefur sagt frá því að hún hafi búið nálægt Epstein í London milli 1978 og 1983. Ekkert bendir til þess að eiginmaður Dorritar, forsetinn …

















































Athugasemdir