Helstu nöfnin í nýju Epstein-skjölunum

Millj­arða­mær­ingar og stjórn­mála­menn koma fyrir í nýjum skjala­skammti frá dóms­mála­ráðu­neyti Banda­ríkj­anna. Gögnin ganga gegn fyrri yfir­lýs­ingum Elons Musk. Epstein virð­ist hafa verið vel kunn­ugur fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands.

Helstu nöfnin í nýju Epstein-skjölunum
Epstein og Maxwell Kærasta Jeffreys Epstein, Ghislaine Maxwell, er sú eina sem situr í fang­elsi vegna aðildar að kyn­ferð­is­brotum hans. Hún hefur afmark­aða teng­ingu við Ólaf Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seta, en hann virð­ist hafa þekkt Dorrit Moussaieff, fyrr­ver­andi for­seta­frú, vel.

Meðal þekktra nafna sem koma fyrir í nýjum skjala­skammti frá banda­ríska dóms­mála­ráðu­neyt­inu um látna, dæmda kyn­ferð­is­brota­mann­inn Jeffrey Epstein, eru millj­arða­mær­ingar og stjórn­mála­menn. Þar á meðal eru: Donald Trump for­seti, Bill Gates, með­stofn­andi Microsoft, Howard Lutnick, við­skipta­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og breski millj­arða­mær­ing­ur­inn Richard Branson.

Hér eru helstu atriðin um ummæli um fræga fólkið, en engin stað­fest lög­brot eru tengd þeim.

Dorrit Moussaieff

Fyrr­ver­andi for­seta­frú Íslands virð­ist hafa verið ágæt­lega kunnug Jeffrey Epstein. Að minnsta kosti nægi­lega vel til þess að í tölvu­ósti til Epsteins er vísað ein­göngu til for­nafns Dorritar þegar honum er sagt að „Dorrit og eig­in­maður hennar frá Íslandi“ hafi verið stödd á St. Regis Aspen Resort hót­el­inu í Colorado í Banda­ríkj­unum þar sem send­and­inn, rit­höf­und­ur­inn Deepak Chopra, seg­ist munu leiða hug­leiðslu fyrir hóp fólks. Dorrit hefur sagt frá því að hún hafi búið nálægt Epstein í London milli 1978 og 1983. Ekkert bendir til þess að …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Epstein-skjölin

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár