Nefndu breiðstræti eftir Trump

Nafn Donalds Trump Banda­ríkja­forsta prýðir sífellt fleiri hluti.

Nefndu breiðstræti eftir Trump
Vígsla Meg Weinberger (t.v.), full­trúa­deild­ar­þing­maður í Flórída, og Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, afhjúpa skilti með áletr­un­inni „Pres­ident Donald J. Trump Boulevard“ við vígslu­at­höfn á Mar-a-Lago á föstu­dag. Mynd: AFP

Þingmenn í Flórída sam­þykktu á dög­unum að end­ur­nefna hluta af Southern Boulevard, stræt­inu sem tengir flug­völl­inn í Palm Beach við aðsetur Donalds Trump Banda­ríkja­for­seta í Mar-a-Lago. Vegurinn fær heitið Pres­ident Donald Trump Boulevard.

Trump sagði nafn­gift­ina „gríð­ar­legan heiður“ og sagð­ist myndu „muna þennan ótrú­lega gjörn­ing það sem eftir er lífs míns.“

Nafn Trumps skreytir nú sífellt fleiri hluti, bæði bygg­ingar í Washington-borg, nýrrar útgáfu her­skipa sjó­hers­ins, land­vist­ar­leyfi fyrir ríka útlend­inga, vef­síðu banda­ríska alrík­is­ins fyrir lyf­seð­ils­skyld lyf og sparn­að­ar­reikn­inga fyrir börn, á vegum rík­is­ins, fyrir utan menn­ing­ar­mið­stöð­ina Trump Kennedy Center.

Venjan fram að þessu hefur verið að nefna bygg­ingar og minn­is­merki eftir for­setum eftir brott­hvarf þeirra úr for­seta­stóli og þá eftir ákvörðun banda­ríska þings­ins.

Nafna­veislan yfir breið­stræt­inu í Flórída var haldin degi eftir að Trump náði þeim lang­þráða áfanga að fá afhend frið­ar­verð­laun Nóbels, eða að minnsta kosti verð­launa­pen­ing­inn, úr hendi frið­ar­verð­launa­hafans, Maríu Corinu Machado, sem Trump hefur sagt að njóti ekki nægrar virð­ingar í Venes­ú­ela til að taka við stjórn lands­ins eftir að Trump fyr­ir­skip­aði mann­rán á for­set­anum Niculás Maduro. Við tók vara­for­seti Maduros.

Gjörn­ing­ur­inn leiddi til þess að norska nóbels­nefndin lýsti því yfir að „verð­launin sjálf - heið­ur­inn og við­ur­kenn­ing­una - væri óað­skilj­an­lega tengd per­són­unni eða sam­tök­unum sem norska nóbels­nefndin útnefnir.“

Nóbels­nefndin listaði síðan upp þá verð­launa­hafa sem hefðu fram­selt eða gefið nóbels­verð­launin, þar á meðal að norski rit­höf­und­ur­inn Knut Hamsun sem valdi að afhenda áróð­urs­mála­ráð­herra Þriðja rík­is­ins, Jósef Göbbels, verð­laun sín í bók­menntum árið 1943, eftir fund þeirra í Þýska­landi nas­ism­ans á meðan her­námi þeirra á Noregi stóð. 

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Það er enginn endir á undirlægjuhættinum við Trump. Og hann gengst upp í þessu eins og krakkakjáni.
    2
    • Jón Baldur Þorbjörnsson skrifaði
      Ég held ég verði bara að fara leiða þetta algjörlega hjá mér til þess að verða ekki sjálfur vitlaus af þessum skrípaleik.
      0
  • Guðlaugur Jóhannsson skrifaði
    já hann er vístt . orðinn Einræðishera .? og þeir barra Ánægðir '' með það_??
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár