Hvaða hljóðfæri er þetta? – og 16 aðrar spurningar

Hvaða hljóðfæri er þetta? – og 16 aðrar spurningar
Mynd 1 Hvað heitir hljóðfærið sem Armand Djikoloum heldur hér á?
Mynd 2Hér má sjá efri hluta andlitsins á ... hvaða manneskju?
  1. Hvaða litur er (nánast alltaf) efstur í regnboga?
  2. Hvaða háttsetti stjórnmálamaður í Bandaríkjunum hefur skrifað bók um uppeldi sitt meðal fátæks sveitafólks í Appalachia-fjöllum?
  3. Heiti hvaða taflmanns á ensku er komið frá latneska orðinu yfir fót?
  4. Fótboltaþjálfarinn Amorim var nýlega rekinn frá enska fótboltaliðinu Manchester United. Hverrar þjóðar er Amorim?
  5. Þingmaður á Alþingi Íslendinga fæddist 1959, vann ýmis störf framan af ævi en dreif sig í menntaskóla kominn á fertugsaldur, kláraði MH 1999, lærði svo stjórnmálafræði um skeið og lauk lögfræðiprófi frá HÍ 2014. Settist svo á þing fáum árum síðar. Þetta er ... hver?
  6. Ein og sama þjóðin hefur oftast unnið gullið á Ólympíuleikum og HM karla í handbolta. Hvaða þjóð er það?
  7. Hvaða líffæri er stærsti, já langstærsti kirtillinn í mannslíkanum?
  8. Hvar er Maríana-gjáin? Svarið þarf aldrei þessu vant ekki að vera hárnákvæmt.
  9. Árið 1939 stofnuðu tveir karlar, sem kölluðu sig Bill W. og Dr. Bob, samtök sem síðan hafa látið verulega að sér kveða en þó oftast í kyrrþey. Hvaða samtök eru það?
  10. Hvaða kvikmyndaleikstjóri gerði myndirnar Jaws, Schindler's List og Jurassic Park?
  11. Vinsældir Laufeyjar Lin aukast sífellt um veröld víða. Í fyrra kom út þriðja stúdíóplatan hennar og nefnist ... hvað?
  12. Fyrsta stúdíóplata hennar kom hins vegar út árið 2022. Hún heitir ... hvað?
  13. Hvaða vítamín fær maður aðallega úr sólarljósi?
  14. Dýrategundir tvær nefnast á latínu Pediculus humanus humanus og Pediculus humanus capitis. Eins og sjá má af millinafni þeirra, „humanus“, eru dýrin afar háð manninum. Fæstir gera nokkurn greinarmun á þessum dýrum og kalla báðar tegundir einfaldlega ... hvað?
  15. Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, var lengi atvinnumaður í fótbolta. Hann lék með liðum í Noregi og Svíþjóð og svo einu liði á Englandi. Hvaða lið var það?

Svör við myndaspurningum: 1.  Armand heldur á óbóinu sínu.   2. Andlitshlutinn sýnir Jónas Hallgrímsson.
Svör við almennum spurningum: 1.  Rauður.  —  2.  J.D. Vance varaforseti.  —  3.  Peðið.  —  4.  Portúgalskur.  —  5.  Inga Sæland.  —  6.  Frakkar.  —  7.  Lifrin.  —  8.  Í sjónum.  Þar er mesta dýpi í heimi.  —  9.  AA.  —  10.  Spielberg.  —  11.  A Matter of Time.  —  12.  Everything I Know About Love.  —  13.  D-vítamín.  —  14.  Lús.  —  15.  Stoke City.
Kjósa
18
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.
Tengdar greinar

Spurningaþrautin

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Íslendingar þurfa að forðast „breska kvillann“
2
ErlentHorft til Evrópu

Ís­lend­ing­ar þurfa að forð­ast „breska kvill­ann“

Þeg­ar Ír­land og Bret­land gengu sam­an í Evr­ópu­banda­lag­ið ár­ið 1973 var Ír­land fá­tækt fyrr­ver­andi ný­lendu­ríki, efna­hags­lega háð hinni gömlu herra­þjóð sinni. Hálfri öld síð­ar er Ír­land orð­ið auð­ug mið­stöð banda­rískra tæknifyr­ir­tækja á borð við Microsoft og Google. Bret­land hef­ur hins veg­ar yf­ir­gef­ið sam­band­ið. Hvaða hlut­verk lék ESB í upp­gangi Ír­lands og hvers vegna fet­uðu ná­granna­rík­in hvort sinn veg?
Getur Ísland staðið við alþjóðlegar skuldbindingar um náttúruvernd utan Evrópusambandsins?
3
Skýring

Get­ur Ís­land stað­ið við al­þjóð­leg­ar skuld­bind­ing­ar um nátt­úru­vernd ut­an Evr­ópu­sam­bands­ins?

Svo virð­ist sem Ís­land sæk­ist eft­ir því að ger­ast að­ili að al­þjóð­leg­um samn­ing­um en leiti síð­ur eft­ir því að inn­leiða regl­urn­ar eða upp­fylla skuld­bind­ing­ar sín­ar. Rætt við líf­fræð­ing­inn Trausta Bald­urs­son og Að­al­heiði Jó­hanns­dótt­ur, pró­fess­or í um­hverf­is­rétti.
Borgþór Arngrímsson
5
Pistill

Borgþór Arngrímsson

Á Kast­rup eykst um­ferð­in en það ger­ir meng­un­in líka

Um­ferð­in um Kast­rup flug­völl við Kaup­manna­höfn eykst ár frá ári. Bú­ist er við að tæp­lega 36 millj­ón­ir far­þega fari um völl­inn á þessu ári og brott­far­ir og kom­ur eru að jafn­aði um 700 á degi hverj­um. Ný 60 þús­und fer­metra við­bót við flug­stöðv­ar­bygg­ing­una verð­ur tek­in í notk­un á næsta ári. Íbú­ar í ná­grenni flug­vall­ar­ins hafa áhyggj­ur af meng­un sem fylg­ir flug­um­ferð­inni.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár