„Erum við að fá Bandaríkjamenn hingað?“

„Mín til­finn­ing er að það sé litið fram hjá Græn­landi,“ segir Rikke Østergaard dokt­or­snemi við Háskól­ann á Græn­landi. Hún telur hug­myndir Banda­ríkja­for­seta varpa ljósi á nýlendu­hyggj­una sem við­gengst víða. Óbreyttir Danir eru spurðir á förnum vegi hvort þeir vilji selja Grænland.

„Erum við að fá Bandaríkjamenn hingað?“
Grænland á valið Rikke telur Danmörku og fleiri ríki gleyma því að setja vilja Græn­lend­inga í fyrsta sæti í umræð­unni und­an­farna daga. Mynd: AFP

„Þetta er í fyrsta skipti sem ég hugsa með mér: Erum við að fá Banda­ríkja­menn hingað?“ segir Rikke Østergaard, dokt­or­snemi við Ilisi­matus­arfik – Háskól­ann á Græn­landi – og með­limur Ful­bright Arctic Ini­ti­ative IV, í við­tali við Heim­ild­ina.

Donald Trump Banda­ríkja­for­seti hefur enn á ný lýst því yfir að Banda­ríkin þurfi að kom­ast yfir Grænland en hann gerði slíkt hið sama þegar hann sat í emb­ætti síð­ast. Meiri alvar­leiki virð­ist þó ein­kenna yfir­lýs­ingar for­set­ans í þetta skiptið og þá sér­stak­lega í kjöl­far inn­rásar hans í Venes­ú­ela. 

Rikke ØstergaardTelur ábyrgð fjöl­miðla mikla.

Rikke útskýrir að yfir­lýs­ingar Banda­ríkja­for­seta hafi víð­tæk­ari áhrif á umræðu um sjálf­stæði á Græn­landi og varpi í raun ljósi á nýlendu­hyggj­una sem við­gengst. „Það er ekk­ert leynd­ar­mál að Grænland vill verða sjálf­stætt.“ En við­brögð Dan­merkur, ýmissa ann­arra ríkja og norð­ur­slóða­sér­fræð­inga í kjöl­far áforma Trumps segir hún ekki …

Kjósa
21
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (3)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Birgit Braun skrifaði
    Hvar mun hann stoppar? Drykkjarvatn og endurnýjanleg orka eru gullið framtíðarinnar...
    1
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    Í gær 13.01.26 var í sænskum sjónvarpsfréttum forvitnilegt viðtal við Ben Hodges fyrrum yfirmann bandarísks herafla í Evrópu um þetta mál. Á endanum segir hann að bandaríski herinn þyrfti að óhlýðnast fyrirmælum um að ráðast á Grænland því fyrir það væri enginn lagalegur grunnvöllur.
    Hann bjóst við að slík umræða fari nú þegar fram milli æðstu manna í Pentagon - eða honum fyndist alla vega að ætti að fara fram. Afar merkilegt sjónarhorn.
    Svo mætti einnig fylgja eftir þeim fréttum af bandaríska þinginu að banna Trump einfaldlega að innlima Grænland. Hvernig er staðan þar núna?
    4
    • Greg Hill skrifaði
      Það var reynt að samþykkja ályktun um stríðsvald (þó sérstaklega tengda Venesúela) sem hefði þurft samþykki þingsins, en hún mistókst með 51 atkvæða gegn 50 fyrir tveimur dögum (googlaðu „War Powers Resolution U.S. 2026“). Hæstiréttur Bandaríkjanna er einnig í miklum vandræðum vegna „maggots“. Bandaríkin eru í miklum vandræðum og því miður lítur út fyrir að þetta verði næsta stóra útflutningsvara okkar.
      0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Grænlandsmálið

ErlentGrænlandsmálið

Græn­lend­ingar mót­mæltu olíu­leit Banda­ríkja­manna

„Okkur finnst okkur vera ógnað,“ sagði Hans Brønlund, for­maður bæj­ar­ráðs Ittoqqortoormiit, þegar Græn­lend­ingar mót­mæltu fyr­ir­hug­aðri olíu­leit banda­rísks fyr­ir­tækis á aust­ur­strönd lands­ins. Fram­kvæmda­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins segir leyfi til að setja búnað á svæðið komið en auð­linda­ráð­herra Græn­lands segir engar leyf­is­veit­ingar hafa orðið.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár