Banaslys til rannsóknar við Sláturfélag Suðurlands

Kona á fer­tugs­aldri lést í slysi. Litl­ar upp­lýs­ing­ar fást um at­vik­ið.

Banaslys til rannsóknar við Sláturfélag Suðurlands
Vettvangur slyssins Lögreglan á Suðurlandi greindi frá því í dag að kona hefði látist fyrir þremur dögum eftir að hafa orðið fyrir ótilgreindri bifreið á bílastæði Sláturfélags Suðurlands. Mynd: map.is/Heimildin

Hvorki lögreglan á Suðurlandi né stjórnendur Sláturfélags Suðurlands vilja veita upplýsingar um banaslys sem varð á bílastæði félagsins á Hvolsvelli 30. desember síðastliðinn. 

Lögreglan tilkynnti um málið á Facebook í dag. 

„Að kvöldi 30. desember síðastliðinn barst Lögreglunni á Suðurlandi tilkynning um alvarlegt slys á Hvolsvelli, þar sem kona á fertugsaldri varð fyrir bifreið á vinnusvæði,“ sagði í tilkynningunni. 

„Konan var flutt á Landspítala háskólasjúkrahús og var hún þar úrskurðuð látin. Tildrög slyssins eru til rannsóknar hjá rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi. Ekki er að vænta frekari upplýsinga frá lögreglu um atvikið.“

Stjórnendur Sláturfélags Suðurlands í höfuðstöðvum og á skrifstofu félagsins á Hvolsvelli hafa neitað að gefa frekari upplýsingar um málið, þar á meðal hvort um hafi verið að ræða starfsmann félagsins, íbúa á svæðinu eða annað sem viðkemur atvikinu, annað en að kona á fertugsaldri hafi látist.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Í minningu afastráksins
3
Viðtal

Í minn­ingu afastráks­ins

Gunn­ar Rand­vers­son starf­aði í ára­tugi sem tón­list­ar­kenn­ari, hef­ur skrif­að ljóð og smá­sagna­safn. Áföll­in hafa mót­að líf hans. Ell­efu ára gam­all horfði hann á föð­ur sinn deyja, 21 árs missti hann móð­ur sína og fyr­ir þrem­ur ár­um lést fjög­urra ára gam­all dótt­ur­son­ur hans. Í ljóða­bók­inni Hvernig er sökn­uð­ur á lit­inn? eru ljóð skrif­uð í minn­ingu litla drengs­ins. Eft­ir frá­fall hans leit­aði Gunn­ar í kirkj­una.

Mest lesið í mánuðinum

„Ég kom úr mjög nánu, fallegu og stóru samfélagi kynlífsverkafólks“
2
Viðtal

„Ég kom úr mjög nánu, fal­legu og stóru sam­fé­lagi kyn­lífs­verka­fólks“

Eft­ir út­skrift úr há­skóla sótti Logn um rúm­lega hundrað störf en ekk­ert kom út úr því. Hán átti góða vini í kyn­lífs­vinnu sem hún leit­aði til. Síð­ar stofn­aði hán Rauðu regn­hlíf­ar­ina, sam­tök kyn­lífs­verka­fólks á Ís­landi. „Sam­stað­an sem kann að eiga sér stað með­al kyn­lífs­verka­fólks er eitt það fal­leg­asta og dýr­mæt­asta sem ég hef upp­lif­að í mínu lífi.“

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár

Loka auglýsingu