Rússar sammála Trump um Úkraínu

„Mjög mik­il­væg“ ummæli Trumps Banda­ríkja­for­seta, segir tals­maður Pútíns.

Samstíga forsetar
Samstíga for­setar Leið­togar Rúss­lands og Banda­ríkj­anna hafa náð saman betur en áður. Hér funda þeir í Anchorage í Alaska fyrr á árinu. Mynd: AFP

Tals­maður rúss­neskra stjórn­valda sagði í dag að nýj­ustu yfir­lýs­ingar Donalds Trump, for­seta Banda­ríkj­anna, um Úkraínu – þar sem hann sagði að Rússland myndi vinna stríðið og að Úkraína yrði að láta af hendi land – væru í sam­ræmi við sjón­ar­mið Rússa.

Í við­tali við Politico sagði Trump einnig að leið­togar Evrópu væru „veikir“ og skor­aði á Volody­myr Zelensky, for­seta Úkraínu, að halda kosn­ingar.

„Að mörgu leyti, hvað varðar NATO-aðild, hvað varðar land­svæði, hvað varðar hvernig Úkraína er að tapa landi, þá er það í takt við okkar skiln­ing,“ sagði Dmitry Peskov, tals­maður stjórn­valda í Kreml, við frétta­menn, þar á meðal AFP, í dag.

Hann kall­aði ummæli Trumps „mjög mik­il­væg“.

Trump sagði að Rússar hefðu sterk­ari samn­ings­stöðu í við­ræðum um að binda enda á stríðið vegna stærðar lands­ins og sagði að Úkraína myndi aldrei ganga í NATO.

Eftir við­talið sagði Zelensky að hann væri reiðu­bú­inn að halda nýjar kosn­ingar í Úkraínu að því gefnu að öryggi yrði tryggt.

Innrás Rúss­lands­hers – sem varð til þess að stjórn­völd í Kyiv settu her­lög – hefur gert ómögu­legt að halda kosn­ingar í land­inu sam­kvæmt úkra­ínskum lögum.

Rússar hafa lengi kallað eftir falli Zelenskys og kallað hann ólög­mætan leið­toga. Áður höfðu þeir vísað til þess að nas­ismi réði ríkjum í Úkraínu, en Zelensky er þó Gyðingur.

„Við munum sjá hvernig atburðir þró­ast,“ sagði Peskov um til­kynn­ingu Zelenskys. Þrátt fyrir gagn­rýni á úkra­ínskt lýð­ræði er lýð­ræði í Rúss­landi fótum troðið og stjórn­ar­and­stæð­ingar hafa verið fang­els­aðir og myrtir á síð­ustu árum. Frelsi fjöl­miðla, sem var lítið fyrir, var að miklu leyti afnumið eftir „sér­tæku hern­að­ar­að­gerð­ina“ sem refsi­vert var að kalla „stríð“.

Banda­ríkin hafa aukið við­ræður sínar við bæði Rússland og Úkraínu til að binda enda á verstu átök Evrópu síðan í seinni heims­styrj­öld­inni.

Í við­tali sínu við Politico sagði Trump að það væri „erfitt“ að ná sam­komu­lagi og að „ein af ástæð­unum er sú að hat­rið milli Pútíns og Zelenskys er gríð­ar­legt“. Hann hafði lýst því yfir fyrir for­seta­kosn­ing­arnar í fyrra að hann myndi binda enda á stríðið á fyrsta degi sínum sem for­seti, en gagn­rýnendur hans vör­uðu við því að hann myndi þvinga fram upp­gjöf Úkraínu í því skyni.

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SIB
    Sigurður I Björnsson skrifaði
    Pútínisminn og Trumpisminn eru eitt og sama fyrirbærið þau eiga sér bara stað í ólíkum löndum og umhverfi. Hvort tveggja eru bara mafíukartel í grunninn.
    0
  • TM
    Tómas Maríuson skrifaði
    " ... hvað varðar hvernig Úkraína er að tapa landi, ..."
    Virkilega? Einhver hefur reiknað út að það taki rússana uþb 200 ár að ná allri Úkrainu með þeim hraða sem þeir hafa sótt fram síðustu árin.
    Og einhver annar hefur reiknað út að snigill hefði komist lengra á þeim þremur árum en rússneski herinn hefur sótt fram.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár