Meina of feitum um vegabréfsáritun

Fólk sem á börn með sér­þarf­ir eða er of feitt get­ur feng­ið synj­un um vega­bréfs­árit­un sem inn­flytj­end­ur sam­kvæmt nýj­um til­mæl­um banda­rískra stjórn­valda.

Meina of feitum um vegabréfsáritun
Donald Trump Forsetinn hefur gert fækkun innflytjenda að einkennismerki sínu. Mynd: AFP

Bandaríkin munu héðan í frá geta synjað fólki um vegabréfsáritun vegna holdarfars þess og barna þeirra sem hafa sérþarfir, samkvæmt nýjum tilmælum ríkisstjórnar Donalds Trump.

Í tilkynningu sem send var fyrr í þessum mánuði biður Marco Rubio utanríkisráðherra bandarísk sendiráð að taka tillit til þátta eins og offitu þegar langtíma vegabréfsáritanir eru gefnar út, á þeim forsendum að offita geti „krafist dýrrar, tímafrekrar umönnunar.“

Þar er einnig beðið sendiráðum að meta hvort einhverjir á framfæri umsækjenda hafi „fötlun, langvinna sjúkdóma eða aðrar sérþarfir og þurfi umönnun“ að því marki að umsækjandinn geti haft skerta starfsgetu vegna þess.

KFF Health News greindi fyrst frá tilkynningunni. Einstaklingur sem sá hana staðfesti innihald hennar við fréttaþjónusut AFP.

Bandaríkjamenn eru nú þegar ein feitasta þjóð heims, sem tengist þáttum eins og mataræði og skorti á hreyfingu.

Um 40 prósent bandarísku þjóðarinnar eru of feit, og er hlutfallið að meðaltali hærra í ríkjum sem kusu Trump.

Nýju leiðbeiningarnar munu eiga við um fólk sem sækist eftir því að flytja til Bandaríkjanna en ekki útlendinga í stuttum heimsóknum.

Bandaríkin hafa lengi litið til þess hvort einstaklingur myndi verða „opinber byrði“ – það er að segja, reiða sig á opinbert fé – áður en innflytjendum er veittur aðgangur, þar á meðal þegar Bandaríkjamenn sækjast eftir því að flytja maka sína til landsins.

En Trump hefur verið sérstaklega ákafur í að finna ástæður til að neita fólki um inngöngu í landið í samræmi við kosningaloforð um að stemma stigu við fólksflutningum til Bandaríkjanna.

„Það er ekkert leyndarmál að ríkisstjórn Trumps setur hagsmuni bandarísku þjóðarinnar í fyrsta sæti,“ sagði Tommy Pigott, talsmaður utanríkisráðuneytisins.

„Þetta felur í sér að framfylgja stefnu sem tryggir að innflytjendakerfi okkar sé ekki byrði á bandarískum skattgreiðendum.“

Ríkisstjórn Trumps hefur fjármagnað auknar aðgerðir í innflytjendamálum í því skyni að vísa óskráðum innflytjendum úr landi í stórum stíl, jafnvel þótt þeir hafi ekki framið aðra glæpi en brot á innflytjendalögum.

Rubio hefur einnig reynt að afturkalla vegabréfsáritanir fyrir fólk sem er talið ganga gegn utanríkisstefnu Bandaríkjanna, þar á meðal vegna yfirlýsinga um Ísrael.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bandaríki Trumps

„Fólk er hrætt”
Viðtal

„Fólk er hrætt”

„Ef þú býrð í landi þar sem ver­ið er að fylgj­ast með þér, þá er það veru­leiki sem þú þarft að díla við,” seg­ir Magnús Þorkell Bern­harðs­son, Mið-Aust­ur­landa­fræð­ing­ur við Williams Col­l­e­ge í Banda­ríkj­un­um og gesta­pró­fess­or við guð­fræði- og trú­ar­bragða­fræði­deild HÍ – sem ný­ver­ið flutti hér á landi fyr­ir­lestra, ann­an um Ír­an og eld­fimt ástand vegna inn­rás­ar þar, hinn um að­þrengt aka­demískt frelsi í Banda­ríkj­un­um.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Kynlífsverkafólk deilir reynslu sinni: „Glæpavæðing einangrar mann“
3
Úttekt

Kyn­lífs­verka­fólk deil­ir reynslu sinni: „Glæpa­væð­ing ein­angr­ar mann“

Fjór­ir ein­stak­ling­ar sem unn­ið hafa mis­mun­andi kyn­lífs­vinnu á Ís­landi segja þörf á að breyta lög­um og laga við­horf sam­fé­lags­ins. Ein­angr­un fólks sem vinn­ur slíka vinnu sé hættu­leg. Í dag hafa þau kom­ið upp sínu eig­in tengslaneti til að styðja hvert ann­að og passa upp á ör­yggi og mann­rétt­indi kyn­lífs­verka­fólks og þo­lenda vænd­is.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár