Náttúran í manninum

Dans bland­ast saman við ljós, hljóð og meira að segja ilm í Flóðreka, nýju verki hjá Íslenska dans­flokknum sem unnið er í sam­starfi við Jónsa í Sigur Rós. Höf­und­ur­inn, Aðal­heiður Hall­dórs­dóttir, segir marga Íslend­inga hræð­ast dans­sýn­ingar en hvetur fólk til að sleppa tak­inu og leyfa sér að upp­lifa.

Náttúran í manninum
Af æfingu á Flóðreka Sýningin er inn­blásin af verki sem Jónsi setti upp í Hafn­ar­húsi í fyrra. Mynd: Víkingur

Flóðreka, ný sýn­ing Íslenska dans­flokks­ins, verður frum­sýnd 8. nóv­em­ber og mega áhorf­endur búast við óhefð­bund­inni upp­lifun sem snertir á fleiri skiln­ing­ar­vitum en leik­hús­gestir eiga að venj­ast.

Aðal­heiður Hall­dórs­dóttir, höf­undur sýn­ing­ar­innar, þró­aði hana upp úr verki sem tón­list­ar­mað­ur­inn Jónsi, gjarnan kenndur við Sigur Rós, setti upp í fyrra. „Sýningin hans Jónsa, Flóð, sem var sett upp í Hafn­ar­hús­inu og víðar, sam­anstendur af ljósi sem er for­ritað eftir hljóð­mynd og ilmi,“ segir Aðal­heiður. „Ég vann með dönsurum í viku og við gerðum ein­hvers konar inn­setn­ingu inni í verk­inu hans sem var dálítið spenn­andi. Af því að það virk­aði vel var ákveðið að vinna heila sýn­ingu og núna er hún komin inn í leik­húsið.“

Blaða­manni finnst á þessum tíma­punkti eins og honum hafi mis­heyrst. Ilmi? Eru þá öll skiln­ing­ar­vitin örvuð á þess­ari sýn­ingu?

„Já, ætli það ekki? Nema snert­ing kannski, við ætlum ekki að snerta áhorf­end­urna,“ segir Aðal­heiður og hlær.

Aðal­heiður …
Kjósa
1
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár