Endurfundir Trumps og Pútíns komnir á ís

Forsetar Rúss­lands og Banda­ríkj­anna vildu hitt­ast í Búdapest til að ræða Úkra­ínu­stríðið. Hindr­anir reynd­ust vera í veg­inum.

Endurfundir Trumps og Pútíns komnir á ís
Trump og Pútín Óvenju­vel fór á með for­set­unum á fundi í Alaska í ágúst. Hindr­anir virð­ast í vegi fyrir end­ur­fundum. Mynd: AFP

Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, frestaði í dag áformum um að hitta Vladimír Pútín, for­seta Rúss­lands, í Búdapest, þar sem til­raunir til að binda enda á stríðið í Úkraínu mættu enn einni hindr­un­inni.

Trump sagði fyrir aðeins nokkrum dögum að hann myndi hitta Pútín innan tveggja vikna, en á sama tíma þrýsti hann á Úkraínu að gefa eftir Donbas-hér­aðið í aust­ur­hlut­anum í skiptum fyrir frið, að því er hátt­settur emb­ætt­is­maður í Kænu­garði sagði frétta­manni AFP.

En Trump hefur nú enn og aftur snúið blað­inu við í til­raun sinni til að binda enda á þriggja og hálfs árs inn­rás Rússa. Talið er að stjórn­völd í Kreml haldi enn fast við allar kröfur sínar þrátt fyrir sím­tal hans við Pútín í síð­ustu viku.

„Ég vil ekki fara á fund sem er til einskis,“ sagði Trump við frétta­menn í Hvíta hús­inu þegar hann var spurður hvers vegna fund­inum hefði verið frestað. „Ég vil ekki eyða tíma mínum, svo ég ætla bara að sjá hvað ger­ist.“

Marco Rubio, utan­rík­is­ráð­herra Banda­ríkj­anna, og Sergej Lavrov, utan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands, aflýstu einnig fyr­ir­hug­uðum fundi til að und­ir­búa leið­toga­fund­inn í Búdapest eftir að hafa rætt saman í síma á mánu­dag.

Stjórn­völd í Rúss­landi sögðu í dag að engin „nákvæm“ dag­setn­ing væri fyrir nýjan fund milli Trumps og Pútíns, sem áttu við­ræður í Alaska í ágúst en náðu ekki að leysa úr deil­unni um Úkraínu.

„Fer í hringi“

Trump hafði sýnt vax­andi gremju í garð Pútíns þrátt fyrir það sem hann segir vera per­sónu­leg tengsl þeirra á milli, en eftir fund með Selenskí í Hvíta hús­inu í síð­ustu viku virt­ist Banda­ríkja­for­seti hafa snú­ist aftur á sveif með Rúss­landi.

Trump þrýsti á Selenskí á „spennu­þrungnum“ fundi að eft­ir­láta Rússum þann hluta Donbas sem ekki hefur verið her­tek­inn, að því er hátt­settur úkra­ínskur emb­ætt­is­maður sagði AFP.

Heim­ild­ar­mað­ur­inn bætti við að við­ræð­urnar við Trump hefðu „ekki verið auð­veldar“ og að diplómat­ískar til­raunir til að binda enda á stríð Rúss­lands og Úkraínu virt­ust vera „dregnar á lang­inn“ og „fara í hringi.“

Trump kall­aði í síð­ustu viku eftir því að bæði stjórn­völd í Moskvu og Kyiv stöðv­uðu stríðið á núver­andi víg­línum en minnt­ist opin­ber­lega ekk­ert á að Úkraína gæfi eftir meira land­svæði.

En þegar hann var spurður hvort Trump hefði hvatt Selenskí til að hörfa af landi sem Úkraína réði enn yfir – ein af lyk­il­kröfum Pútíns – sagði hátt­settur úkra­ínskur emb­ætt­is­maður við AFP: „Já, það er rétt.“

Selenskí fór tóm­hentur af fund­inum eftir að Trump, sem ræddi við Pútín dag­inn áður, hafn­aði beiðni hans um Tomahawk-lang­drægar eld­flaugar og þrýsti á hann að gera fyrr­greindan samn­ing.

Úkraína lítur á Donbas – iðn­að­ar­svæði að mestu sem nær yfir hér­uðin Lúhansk og Donetsk í aust­ur­hlut­anum – sem óað­skilj­an­legan hluta af yfir­ráða­svæði sínu og hefur margoft hafnað hug­mynd­inni um að láta það af hendi.

Evrópa stendur með Úkraínu

Evr­ópskir leið­togar hafa á meðan hafnað hug­mynd­inni um að Úkraína gefi eftir land – og styðja þess í stað til­lög­una um að bar­dagar verði frystir á núver­andi víg­línum.

Í sam­eig­in­legri yfir­lýs­ingu sem birt var í dag vör­uðu leið­togar, þar á meðal Emmanuel Macron Frakk­lands­for­seti, Giorgia Meloni for­sæt­is­ráð­herra Ítalíu og Keir Starmer for­sæt­is­ráð­herra Bret­lands, við því að Rússum væri ekki „alvara með frið.“

„Við styðjum ein­dregið afstöðu Trumps for­seta um að bar­dögum skuli hætt taf­ar­laust og að núver­andi víg­lína skuli vera upp­haf­s­punktur samn­inga­við­ræðna,“ segir í yfir­lýs­ing­unni.

Selenskí, sem þrýstir á um að fá að sækja hvaða leið­toga­fund sem er eftir að hafa verið úti­lok­aður frá fundi Trumps með Pútín í Alaska, hefur úti­lokað eft­ir­gjöf land­svæða.

Leið­togar ESB munu þjappa sér saman til stuðn­ings Úkraínu á leið­toga­fundi í Brussel á fimmtu­dag – og degi síðar fer fram fundur „banda­lags viljugra“ evr­ópskra leið­toga í London til að ræða næstu skref til að hjálpa Úkraínu.

Pútín fyr­ir­skip­aði alls­herj­ar­inn­rás í Úkraínu í febr­úar 2022 og lýsti henni sem „sér­stakri hern­að­ar­að­gerð“ til að afvopna landið og koma í veg fyrir stækkun NATO.

Rússar her­nema nú um fimmt­ung af yfir­ráða­svæði Úkraínu – sem er að mestu leyti í rústum eftir bar­daga – á meðan tug­þús­undir almennra borg­ara og her­manna hafa fallið.

Í dróna­árás Rússa fyrr á þriðju­dag á bæinn Novhorod-Siverskyj í Tsjerní­hív-hér­aði í norð­ur­hluta Úkraínu lét­ust fjórir, að sögn þar­lendra almanna­varna.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Eins og önnur heimstyrjöldin byrjaði í Póllandi þannig byrjar þriðja heimstyrjöldin í úkraína kornforða búri heimsins þetta heitir herkænsku af verstu sort sem til er og þeir sem standa að baki þessum ósköpum gefast ekki svo glatt upp með að ná markmiðum miðum sínum með eins miklum heims yfirráðum og þeir komast upp með og guð hjálp þeim eftir lifendur og afkomendum þeirra ef það tekst hjá þessum slægu og stórhættu legu mínnum
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

3
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.
6
Viðskipti

Hagnaður Krón­unnar jókst um 500 millj­ónir en afkoma N1 versn­aði

Krónan hagn­að­ist um 2,6 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins, um hálfum millj­arði meira en á sama tíma í fyrra. Versl­un­ar­keðjan hefur aukið sölu sína og frysti í sept­em­ber verð á 647 vörum í tengslum við bar­átt­una gegn verð­bólgu. Á sama tíma hefur hagn­aður N1 dreg­ist veru­lega saman og heild­ar­hagn­aður móð­ur­fé­lags­ins Festis minnkað.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

2
Vettvangur

Búa við nýtt vind­orku­ver: „Við nátt­úr­lega venj­umst öllu“

„Ef ég teldi þetta vera slæmt þá væri ég ekki sitj­andi hérna svona rólegur yfir þessu,“ segir Aron Viðar Krist­jáns­son, bóndi á bænum Garpsdal í Reyk­hóla­hreppi. Fyr­ir­hugað er að reisa vind­orku­garð ofan á Garps­dals­fjalli sem er fyrsti vind­orku­kost­ur­inn sem er færður úr bið­flokki yfir í orku­nýt­ing­ar­flokk af ráð­herra. Heim­ildin fór á vett­vang.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
3
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár