Telur málið eiga fullt erindi til Mannréttindadómstólsins

Gunnar Ingi Jóhanns­son, lög­maður Aðal­steins Kjart­ans­sonar blaða­manns, segir til skoð­unar að fara með meið­yrða­mál fyrir Mann­rétt­inda­dóm­stól Evrópu. Páll Vil­hjálms­son blogg­ari var sýkn­aður í mál­inu.

Telur málið eiga fullt erindi til Mannréttindadómstólsins
Gunnar Ingi Jóhanns­son

„Þetta er nið­ur­staðan og ég tel að dómafor­dæmi frá Mann­rétt­inda­dóm­stólnum gefi vís­bend­ingar um að þessi nið­ur­staða sé langt frá því að vera rétt,“ segir Gunnar Ingi Jóhanns­son, lög­maður Aðal­steins Kjart­ans­sonar, aðstoð­ar­rit­stjóra Heim­ild­ar­innar.

Páll Vil­hjálms­son blogg­ari var sýkn­aður í Lands­rétti í júní sem hann lét falla um Aðal­stein. Hæsti­réttur hafn­aði því í gær að taka málið fyrir.

Aðal­steinn stefndi Páli vegna skrifa og vann málið í hér­aðs­dómi en Lands­réttur snéri dómnum í kjöl­farið við. Skrif Páls vörð­uðu umfjöllun Aðal­steins og ann­arra blaða­manna um svo­kall­aða „skæru­liða­deild Samherja“ sem beitti sér í opin­berri umræðu um Sam­herj­a­málið sem varðar meintar mútu­greiðslur í Namibíu og skattaund­an­skot tengdum alþjóð­legum rekstri útgerð­ar­fyr­ir­tæk­is­ins.

Páll sak­aði blaða­menn­ina um að hafa haft aðild að byrlun á skip­stjóra Samherja. Lög­reglan á Norð­ur­landi eystra rann­sak­aði byrl­un­ar­málið í þrjú ár en felldi það niður í fyrra.

Kjósa
45
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Guðjón Jensson skrifaði
    Að hagsmunaaðilar komist upp með aðstoð dómstóla að þagga niður réttmæta gagnrýni rannsóknablaðamanna , verður að teljast miður fyrir samfélag sem telur sig teljast til réttarríkis.
    Auðvitað ber að bera þetta mál undir Mannréttindadómstólinn í Strassbourgh enda varðar það störf blaðamanna sem og okkur öll.
    Það er ætíð farsælt að sýna fyllstu varkárni og fullyrða fremur minna en of mikið. Pistlahöfundurinn sem málið snýst um hefur orð á sér að fara oft of langt í fullyrðingum sínum. Blaðamaðurinn hefur kappkostað að vanda sín störf og bera að virða þau.
    13
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár