„Next time in Moscow“

Vladimir Pútín sagði „sam­komu­lag“ hafa náðst milli Rúss­lands og Banda­ríkj­anna og Donald Trump lýsti því sama. Frétta­skýrendur eru ráð­villtir yfir því hvað gerð­ist á fund­inum.

„Next time in Moscow“
Vladimir Pútín Gladdist á blaða­manna­fundi með Donald Trump. Mynd: AFP

Leið­toga­fundi Vla­dimirs Pútíns Rúss­lands­for­seta og Donalds Trump Banda­ríkja­for­seti lauk rétt í þessu með óljósri nið­ur­stöðu, en „sam­komu­lagi“, að sögn Pútíns og Trumps. For­set­arnir svör­uðu engum spurn­ingum frá blaða­mönnum eftir fund­inn og útskýrðu í engu um hvað náð­ist sam­komu­lag. 

Trump hafði boðað harðar refsi­að­gerðir gegn Rússum og sagð­ist stefna að því að fund­ur­inn leiddi til vopna­hlés, en ekk­ert slíkt virð­ist hafa feng­ist frá Pútín.

„Það er eng­inn samn­ingur fyrr en það er samn­ingur,“ sagði Trump á sam­eig­in­legum blaða­manna­fundi með Pútín í Alaska. Þetta er í fyrsta sinn í tæp tíu ár sem Pútín kemur til Banda­ríkj­anna og fyrsta heim­sókn hans til vest­ræns ríkis frá því hann hóf inn­rás í Úkraínu í því skyni að ná fram land­vinn­ingum.

Trump sagði á blaða­manna­fundi að báðir vildu þeir koma í veg fyrir að þús­undir myndu deyja í hverri viku.

„Við áttum afar árang­urs­ríkan fund og náðum sam­komu­lagi um mörg atriði. Það eru aðeins örfá atriði eftir,“ sagði Trump  og bætti við: „Við náðum ekki alveg í mark, en við eigum mjög góða mögu­leika á að ná því.“

Hann sagði hafa náðst saman með mörg mál, en ekki öll. „Eitt er lík­lega mik­il­væg­ast, en við höfum mikla mögu­leika á að ná þangað,“ sagði hann án þess að útskýra nánar.

„Ég mun hringja í Nató fljót­lega og ég mun hringja í Zelensky for­seta [Úkraínu],“ sagði Trump.

Pútín sagði að Úkraína og banda­menn hennar í Evrópu ættu ekki að skapa „hindr­anir“ fyrir friði þegar hann tal­aði við hlið Donalds Trump.

Hann sagði að Moskva vænt­ist þess „að Kiyv og höf­uð­borgir Evrópu muni taka öllu þessu á upp­byggi­legan hátt og muni ekki skapa neinar hindr­anir, muni ekki gera til­raunir til að trufla fram­far­irnar sem eru að mynd­ast með ögrun eða leyni­makki á bak við tjöldin.“

Pútín full­yrti að þeir hefðu „náð sam­komu­lagi“ og sagði tíma­bært að lag­færa sam­bandið milli Rúss­lands og Banda­ríkj­anna.

„Samn­inga­við­ræður okkar fóru fram í upp­byggi­legu and­rúms­lofti og af gagn­kvæmri virð­ingu. Þær voru mjög ítar­legar og gagn­legar,“ sagði Pútín við blaða­menn.

„Next time in Moscow!“ sagði Pútín á ensku undir blá­lok fund­ar­ins, eða: „Næst í Moskvu“.

„Það hitnar undir mér við það! En ég gæti séð það ger­ast,“ svar­aði Trump.

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Úkraínustríðið

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
4
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár