Lektor segir kröfuna um að hann verði rekinn, árás á sitt akademíska frelsi

Ingólfur Gíslason segir harða gagn­rýni sem hefur beinst að honum vegna mót­mæla í tengslum við Háskóla Íslands, árás á sitt eigið akademíska frelsi. Hann segir tal um að kæra hann fyrir brot á siða­reglum háskól­ans til­raun til þess að bæla niður gagn­rýn­is­raddir.

Lektor segir kröfuna um að hann verði rekinn, árás á sitt akademíska frelsi
Ingólfur Gíslason var staddur á mót­mælum í sal Þjóð­minja­safns­ins, þar sem ísra­elskur pró­fessor átti að halda fyr­ir­lestur um gervi­greind á vinnu­mark­aði. Mynd: Víkingur

„Ég lít á þessar árásir, ef ein­hver krefst þess að ég verði rek­inn, sem árásir á mitt akademíska frelsi,“ segir Ingólfur Gíslason, lektor við mennta­svið Háskóla Íslands. Hann tók þátt í mót­mælum gegn ísra­elskum pró­fessor sem hugð­ist halda erindi um gervi­greind á vegum Gylfa Zoega, pró­fess­ors í hag­fræði, í fund­ar­sal Þjóð­minja­safns­ins í síð­ustu viku. Hópur mót­mæl­enda mætti á fyr­ir­lest­ur­inn og Gylfi aflýsti fund­inum eftir orða­skipti við mót­mæl­endur.

Mót­mæl­endur krefj­ast þess að árásum Ísraela á Palest­ínu­menn linni og voru ósáttir við að pró­fessor frá Bar-Ilan-háskól­anum í Ísrael fengi að halda gagn­rýn­is­laust erindi hér á landi. Það er í anda alþjóð­legrar snið­göngu­hreyf­ingar gegn Ísrael, þar sem mót­mæl­endur reyna að þvinga Ísrael til að hætta árás­ar­hern­aði á Gaza. Þá halda mót­mæl­endur því fram að háskól­inn eigi í virku sam­starfi við ísra­elska her­inn, meðal ann­ars í gegnum svo­kallað „hakkathon“ með alræmdum örygg­is­sveitum Ísraels og með því að veita náms­ein­ingar fyrir þátt­töku í hern­aði.

…
Kjósa
63
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (6)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • MM
    Markus Moller skrifaði
    Lektorinn hefði átt að lesa Voltaire aftur áður en hann reyndi að þagga niðri í Ísraelsmanninum og koma þannig í veg fyrir mikilvæga umræðu. Ekki mæli ég stefnu og gerðum ísraelskra stjórnvalda bót, nema síður sé, en það er mikilvægara að beita rökum en beita yfirgangi og þöggun.
    -6
    • GH
      Greg Hill skrifaði
      Ég er sammála þér . Það er erfitt að halda áfram að styðja við samræður en nauðsynlegt í samanburði við aðra valkosti.
      0
  • ÆK
    Ævar Kjartansson skrifaði
    Hugrekki er alltaf mikilvægt, ekki síst hjá háskólafólki
    12
  • Björg Sverrisdóttir skrifaði
    Vel gert hja Ingolfi og á hann þakkir skilið fyrir að standa a móti hryllingnum sem Israelar standa fyrir. Morðingjum á alltaf að mótmæla harkalega ! Enn harkalegar en þetta !
    13
  • MS
    Michael Schulz skrifaði
    I see Ingólfur Gíslason standing on the right side of history and principles, incl. the ethics of academia and individual morals!
    12
  • Jón M Ívarsson skrifaði
    Vel gert hjá lektornum. Maður sem þorir að standa með skoðunum sínum.
    18
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár