Kjarnorkuógnin: Hve margar eru sprengjurnar?

Níu lönd eiga kjarn­orku­sprengjur en fjöldi þeirra er vel geymt leynd­ar­mál. Sér­fræð­ingar hafa þó leyft sér að giska

Kjarnorkuógnin: Hve margar eru sprengjurnar?

Kjarn­orku­vopn eru meira í sviðs­ljós­inu en verið hefur. Það er bæði vegna minn­ing­ar­at­hafna vegna þess að 80 ár eru frá kjarn­orku­árásum Banda­ríkj­anna á Hírósjíma og Nagasakí en líka vegna heldur gáleys­is­legra hót­ana sumra rúss­neskra ráða­manna um að beita kjarn­orku­vopnum ef að þeim yrði þrengt.

En hve mörg kjarn­orku­vopn eru nú til í ver­öld­inni?

Það er auð­vitað ekki vitað með vissu. Öll ríki sem eiga kjarn­orku­vopn halda því býsna vand­lega leyndu nákvæm­lega hve margar sprengj­urnar eru, hvar þær eru nið­ur­komnar og hve ölfugar þær eru.

En þó telja stofn­anir sem fylgj­ast með þessum málum eft­ir­far­andi tölur nærri lagi.

Heild­ar­fjöldi kjarn­orku­vopna nú: 9.500.

Þar af eru rétt tæp­lega 4.000 til reiðu hvenær sem er eða með mjög skömmum fyr­ir­vara.

Um 5.600 sprengjur eru í „geymslu“ sem kallað er en gera má þær virkar með nokk­urra daga eða í mesta lagi vikna fyr­ir­vara.

Rússar eiga flestar sprengjur eða um 4.300.

Af þeim eru 1.700 til­búnar til notk­unar en um 2.600 eru í geymslu.

Banda­ríkja­menn hafa um það bil jafn margar sprengjur til­búnar, eða um 1.700 en um 1.900 eru í geymslu.

Alls eru banda­rísku sprengj­urnar um 3.700.

Kín­verjar eru taldir hafa 50 sprengjur til reiðu en um 450 í geymslu.

Alls eru því um 500 sprengjur í kín­verskum vopna­búrum.

Þá er talið að Kín­verjar hafi nýlega sett mik­inn kraft í fram­leiðslu á sprengjum og þeir muni verða komnir með um 1.000 sprengjur innan örfárra ára.

Frakkar eiga um 290 sprengjur, nær allar til­búnar til notk­unar.

Bretar eiga öllu færri sprengjur, eða um 225 og þar af eru um 120 til reiðu hvenær sem er.

Flestar sprengjur Frakka og Breta eru heldur lítil vopn miðað við stærstu sprengjur Rússa, Banda­ríkj­anna og nú síð­ast Kínverja – þótt vita­skuld sé heldur afstætt að tala um „litlar kjarn­orku­sprengjur“.

Jafnvel „litlu“ sprengj­urnar nú til dags eru mun öfl­ugri vopn en sprengj­urnar sem sprengdar voru yfir Hírósíma og Nagasakí fyrir 80 árum.

Fjögur ríki til við­bótar eiga kjarn­orku­vopn.

Pakistanar eru taldir eiga um 180 sprengjur og Ind­verjar um 160. Hvorug þjóðin er þó talin eiga virkar sprengjur í vopna­búrum sínum heldur séu þær allar eða flestallar í geymslu.

Kjarn­orku­vopna­eign Ísraela er mjög vel varð­veitt leynd­ar­mál en talið er nokkuð víst að þeir eigi um 80-90 sprengjur. Sumir telja þó að þær séu meira en helm­ingi fleiri eða um 200. Þær telj­ast vera í geymslu.

Svo eiga Norður-Kóreu­menn kjarn­orku­sprengjur en lítið er vitað um hve margar þær eru eða hve not­hæfar. Sumir sér­fræð­ingar hafa giskað á að sprengjur Kim-ætt­ar­innar kunni að vera 30-40 en óvíst hvernig og hvort er hægt að beita þeim.

Þótt þær 9.500 kjarn­orku­sprengjur sem nú eru til hljómi vita­skuld skelfi­lega, þá má þó hugga sig við að árið 1986 – þegar Ronald Reagan og Mikhaíl Gor­bat­sjov komu til Reykja­víkur að reyna að kom­ast að sam­komu­lagi um fækkun þess­ara helj­ar­vopna, þá voru þær heldur fleiri en nú.

Þá er talið að fjöld­inn hafi verið 64.000 sprengjur!

Þar af áttu Sov­ét­ríkin 40.000 sprengjur en Banda­ríkin 23.000.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Arnar Guðmundsson skrifaði
    Þetta er svona svipað gáfulegt og við erjur í fjölbýlishúsi væru helstu hótarar með hótanir um að brenna næstu íbúð í stigaganginum til kaldra kola.
    1
  • Birgit Braun skrifaði
    Það væri fróðlegt að vita hversu oft við getum sprengt hnöttinn með þeim sprengjum sem þegar eru til. Alveg klikkað....og við styðjum þessa framleiðslu hugsanlega með hlutabréfum sem við kaupum sem einstaklinga, í gegnum lífeyrisjóði....
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Flækjusagan

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár