Mögulegar mútur Paramount og áhrif Trumps á CBS

Fjöl­miðla­fyr­ir­tækið CBS og móð­ur­fyr­ir­tæki þess Paramount hafa sætt gagn­rýni und­an­farið eftir að til­kynnt var um að fram­leiðslu spjall­þáttar Stephen Colbert, Late Show, yrði hætt á næsta ári. Colbert hefur verið gagn­rýn­inn á rík­i­s­tjórn Donald Trumps. Paramount hefur verið sakað um mögu­legar mútur sem hagn­ast Trump.

Mögulegar mútur Paramount og áhrif Trumps á CBS

Þátta­stjórn­and­inn Stephen Colbert sem hefur stýrt spjall­þætt­inum The Late Show síð­ast­liðin fimmtán ár greindi frá því fyrir helgi að næsta sería yrði sú síð­asta. Ákvörð­unin var til­kynnt nokkrum dögum eftir að Colbert gagn­rýndi CBS, sem sýnir Late Show, fyrir að lúta Donald Trump Banda­ríkja­for­seta. Trump hefur und­an­farið verið ósáttur við CBS og kærði fyr­ir­tækið síð­asta haust. 

Segja ákvörðunina fjárhagslega

„Ég verð að segja ykkur svo­lítið sem ég fékk bara að vita í gær. Næsta ár verður síð­asta ser­ían. Sjón­varps­stöðin ætlar að hætta með Late Show í maí,“ sagði Colbert við áhorf­endur sína á fimmtu­dag­inn. Þeir voru ekki par sáttir og mátti heyra áhorf­endur í sal púa. „Já, ég er sam­mála ykkur,“ sagði Colbert. 

Í til­kynn­ingu frá CBS sem sýnir þætt­ina segir að ein­göngu sé um „fjár­hags­lega ákvörðun í krefj­andi umhverfi seint á kvöldin“ að ræða. Þá sagði CBS að ákvörð­unin sneri „ekki á nokkurn hátt að frammi­stöðu þátt­ar­ins, efni hans eða öðrum málum sem eru í gangi hjá Paramount.“

Ákvörðun CBS um að taka þátt­inn af dag­skrá kemur aðeins nokkrum dögum eftir að Colbert gagn­rýndi Paramount, móð­ur­fyr­ir­tæki CBS, fyrir að ná sáttum í máli við Donald Trump Banda­ríkja­for­seta. Greiddi Paramount for­set­anum 16 millj­ónir dala vegna máls sem að hann höfð­aði gegn CBS News fyrir við­tal í frétta­skýr­inga­þætt­inum 60 Minutes við Kamölu Harris sem var þá for­seta­fram­bjóð­andi Demókrata. 

Málið höfð­aði Trump í októ­ber 2024, sem ein­stak­lingur, vegna meintrar „hlut­drægni, ólög­legra kosn­inga og afskipta við kjós­endur.“ CBS vildi vísa mál­inu frá og kall­aði það „móðgun við fyrsta við­auka stjórn­ar­skrár­innar“ og sagði að kær­urnar ættu sér „ekki stoð í lögum eða stað­reyndum.“ 

„Paramount veit að þeir hefðu getað barist gegn því,“ útskýrði Colbert í Late Show síð­asta mánu­dag. En fyr­ir­tækið hafði sjálft kall­aði mál­sókn­ina „algjör­lega til­efn­is­lausa.“

Efast ástæður Paramount

Paramount og CBS hafa und­an­farið sætt mik­illi gagn­rýni. En Paramount hefur sótt um sam­þykki frá banda­rísku fjar­skipta­stofn­un­inni – FCC – fyrir 8,4 millj­arða dala sam­runa við Skydance Media. 

Þannig þykir sumum Paramount vera að koma sér í mjúk­inn hjá Trump til þess að tryggja sam­runan og hafa því áhyggjur af fjöl­miðla­frelsi. 

Freedom of the Press Foundation sagði um ákvörðun Paramount að semja við Trump í byrjun mán­aðar: „Í dag er svartur dagur fyrir fjöl­miðla­frelsi. Sú und­ir­gefna ákvörðun Paramount að semja um til­efn­is­lausa mál­sókn Trumps sem brýtur gegn stjórn­ar­skránni er móðgun við blaða­menn 60 Minutes og gefur Trump tæki­færi til að halda áfram að beina sjónum sínum að öðrum frétta­miðlum. Í hvert skipti sem fyr­ir­tæki kipp­ist við og verður við kröfum Trumps hvetur það hann ein­ungis til að gera það aftur.“

Mögulegar mútur

Elizabeth Warren öld­unga­deild­ar­þing­maður sagði um ákvörðun CBS að aflýsa Late Show: „CBS aflýsti þætti Colberts aðeins ÞREMUR DÖGUM eftir að Colbert gagn­rýndi Paramount, móð­ur­fé­lag CBS ... Banda­ríkin eiga skilið að vita hvort þáttum hans var aflýst af póli­tískum ástæðum.“

Warren ásamt öld­unga­deild­ar­þing­mönn­unum Bernie Sanders og Ron Wyden opn­uðu í lok maí rann­sókn til að athuga hvort Paramount væri að múta Trump vegna sam­þykkis sem fyr­ir­tækið þarf fyrir átta millj­arða doll­ara risa­sam­runa við Skydance Media. „Paramount virð­ist vera að reyna að halda friði við stjórn­ina til að tryggja sam­þykki sam­ein­ing­ar­innar,“ sögðu þau um málið. 

Warren, Sanders og Wyden skrif­uðu til Shari Redstone, stjórn­ar­for­manns Paramount Global, og lýstu áhyggjum af því hvort Paramount væri að taka þátt í ólög­legri hegðun gagn­vart Trump-stjórn­inni í skiptum fyrir sam­þykki fyrir risa­sam­runa fyr­ir­tæk­is­ins við Skydance Media.

Í yfir­lýs­ingu vegna rann­sóknar þeirra sagði um sáttir Paramount og Trump: „Nú virð­ist Paramount vera að draga til baka skuld­bind­ingar sínar um að verja rétt­indi CBS sam­kvæmt fyrsta við­auka stjórn­ar­skrár­innar.“ Trump hagn­ast á sátt­inni.

Sagði af sér vegna minna frelsis

Fleiri hafa fundið fyrir breyt­ingum innan CBS í ljósi aðkomu rík­is­ins sem þarf fyrir sam­run­ann. Bill Owens, fram­leið­andi 60 Minutes sem sýndur er á CBS News, til­kynnti í apríl að hann hefði sagt af sér. Taldi Owens sig ekki lengur hafa frelsi til að stýra þætt­inum og taka sjálf­stæðar ákvarð­anir. 

Í minn­is­blaði til starfs­fé­laga sinna sagði Owens: „Það varð mér ljóst að mér yrði ekki leyft að stýra þætt­inum eins og ég hef alltaf gert, að taka sjálf­stæðar ákvarð­anir út frá því sem væri rétt fyrir 60 mín­útur, rétt fyrir áhorf­endur.“

Owens var fram­leið­andi þegar Trump lög­sótti CBS fyrir við­talið við Kamölu Harris. Í frétt CNN um málið segir: „Afsögn Owens tryggði Trump annan stór­sigur gegn sjón­varps­stöð­inni.“

Kjósa
41
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Eins og alt bendir til í heiminum í dag þávirðist sem frelsi til hugsana orða og athafna fara minnkandi í dag fyrir almenning virðist vera og ekkert er nýtt undir sólinni
    3
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár