Borgin furðar sig á gagnrýni á trjáfellingar í Öskjuhlíð

Sam­göngu­stofa tel­ur áætl­un borg­ar­inn­ar um trjá­fell­ing­ar í Öskju­hlíð í þágu flu­gör­ygg­is ekki stand­ast kröf­ur. Meiri­hlut­inn í borg­inni og fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri furða sig á við­brögð­un­um.

Borgin furðar sig á gagnrýni á trjáfellingar í Öskjuhlíð
Trjáfellingar í Öskjuhlíð Samgöngustofa gagnrýnir áætlun Reykjavíkurborgar. Mynd: Golli

Samgöngustofa telur áætlun Reykjavíkurborgar um að fella tré í Öskjuhlíð í þágu flugöryggis við Reykjavíkurflugvöll ekki uppfylla skilyrði sem stofnunin setti í janúar. „Af því leiðir að Samgöngustofa getur ekki fallist á þá niðurstöðu borgarinnar að með aðgerðaráætluninni séu tilmæli stofnunarinnar uppfyllt og málinu lokið,“ segir í bréfi Samgöngustofu sem barst í maí og borgarráð tók fyrir á fundi sínum á fimmtudag.

Meirihlutinn í borgarráði auk fulltrúa Framsóknarflokks furða sig á viðbrögðum Samgöngustofu við áætluninni.

Samgöngustofa gagnrýnir í bréfi sínu að aðgerðaráætlun borgarinnar hafi ekki verið unnin í samstarfi við Isavia og það hafi verið staðfest af Isavia. Þá veitti stofan Reykjavíkurborg frest til 9. júní til að upplýsa hvort borgin mundi skila uppfærðri aðgerðaráætlun í samræmi við skilyrði. Þá yrði veittur frestur til að skila áætluninni til 30. júní.

„Verði ekki gripið til framangreindra ráðstafana mun Samgöngustofa horfa til þeirra lagalegu úrræða sem stofnunin hefur samkvæmt lögum um loftferðir 80/2022 til að grípa til aðgerða,“ segir í bréfi Samgöngustofu.

Borgarráð tók bréfið fyrir á fundi sínum síðastliðinn fimmtudag. „Samstarfsflokkarnir í borgarráði furða sig á svari Samgöngustofu,“ segir í bókun meirihlutaflokkanna. „Samstarfsflokkanir vísa því á bug að áætlunin uppfylli ekki þau skilyrði sem sett voru í þágu flugöryggis en beiðnin sneri að aðgerðaáætlun um trjáfellingar í Öskjuhlíð. Að okkar mati gerir aðgerðaáætlun Reykjavíkurborgar því góð skil hvernig borgin hyggst uppfylla skipulagsreglur Reykjavíkurflugvallar þar sem gengið var svo langt að leggja til að GPS merkja hvert einasta tré og fella þau sem skaga upp í skilgreindan VSS flöt sem geta talist íþyngjandi og umfangsmiklar aðgerðir. Telji Samgöngustofa að áætlunin uppfylli ekki þær kröfur sem lagt var upp með, væri æskilegt að veittar væru leiðbeiningar þess efnis hvað vanti upp á.“

Þá segja fulltrúar meirihlutans að samráð hafi verið haft við hagaliða og þar á meðal Isavia. „Eins er minnt á að ISAVIA er hagaðili málsins og getur það talist sérstakt að eftirlitsaðilinn og stjórnvaldið Samgöngustofa vísi alfarið á hagaðila. Að lokum minna samstarfsflokkanir á mikilvægi þess að þeir samningar sem gerðir hafa verið milli ríkis og borgar sem snúa annars vegar að flugvellinum og hins vegar að uppbyggingu kennslu- og æfingaflugvallar séu uppfylltir,“ segir í bókuninni.

Fyrrum borgarstjóri furðar sig

Einar Þorsteinsson, fulltrúi Framsóknarflokks í borgarráði og fyrrverandi borgarstjóri, tekur í sama streng. „Bréf Samgöngustofu vekur furðu því borgarfulltrúi Framsóknar telur ljóst af ferli málsins að aðgerðaáætlunin var unnin í samráði við bæði Isavia og Samgöngustofu í byrjun ársins,“ segir í bókun hans. „Afar mikilvægt er að fá skýrt fram hvaða kröfur Samgöngustofa setur fram gagnvart borginni og væntanlega Kópavogi vegna aðflugs yfir Kársnes. Framsókn telur brýnt að vinna málið í góðri sátt og með það að markmiði að tryggja rekstraröryggi flugvallarins enda gegnir hann afar mikilvægu hlutverki.“

Einar ÞorsteinssonFyrrverandi borgarstjóri furðar sig á bréfi Samgöngustofu.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins bættu því við að málið ætti að vinna í sem bestu samstarfi við flugmálayfirvöld í því skyni að tryggja flugöryggi á og við Reykjavíkurflugvöll. „Uppfæra þarf aðgerðaáætlun um trjáfellingar í Öskjujhlíð í þágu flugöryggis,“ segir í bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokks. „Jafnframt þarf að greiða fyrir afgreiðslu nokkurra smávægilegra skipulagsbreytinga í því skyni að auka öryggi á Reykjavíkurflugvelli. Breytinganna er þörf vegna fyrirhugaðrar uppsetningar nýrra aðflugsljósa við vesturenda flugvallarins, færslu eldsneytisgeyma og uppsetningu á myndavélamastri.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
1
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.
Halldór Jörgen Olesen
2
Aðsent

Halldór Jörgen Olesen

Hver borg­ar fyr­ir arð­semi bank­anna?

Ís­lensku bank­arn­ir græða nærri tvö­falt meira á hverri lán­aðri krónu en evr­ópsk­ir bank­ar. Há­ir stýri­vext­ir Seðla­bank­ans juku hagn­að­inn, en bjuggu hann ekki til. Skýr­ing­in ligg­ur í þrennu: að­eins þrír stór­ir bank­ar skipta mark­aðn­um á milli sín, verð­tryggð lán færa verð­bólgu­áhætt­una frá bönk­un­um yf­ir á heim­il­in, og krón­an lok­ar land­inu fyr­ir sam­keppni að ut­an. Töl­urn­ar stand­ast skoð­un og spurn­ing­arn­ar sem þær vekja gera það líka.
Hélt upp á afmælið með blóðugum bardaga í Hvíta húsinu
6
Erlent

Hélt upp á af­mæl­ið með blóð­ug­um bar­daga í Hvíta hús­inu

„Michelle Obama er karl­mað­ur, er það ekki rétt, Am­er­íka?“ öskr­aði bar­dagakappi í míkró­fón­inn þar sem hann barð­ist fyr­ir fram­an for­set­ann. Don­ald Trump hélt upp á átt­ræð­is af­mæl­ið með því að setja upp UFC-bar­daga í Hvíta hús­inu. Að­dá­andi sagði við­burð­inn „tákn­ræn­an og lýs­andi fyr­ir banda­ríska menn­ingu“ á með­an aðr­ir sögðu hann smekk­lausa nið­ur­læg­ingu.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Milljarða fjárfestingar Guðbjargar sem ekki sjást í skýrslunni
2
Úttekt

Millj­arða fjár­fest­ing­ar Guð­bjarg­ar sem ekki sjást í skýrsl­unni

Við­skipta­veldi Guð­bjarg­ar Matth­ías­dótt­ur bygg­ir fyrst og fremst á hagn­aði í sjáv­ar­út­vegi. Frá því að hún sett­ist í stjórn Ís­fé­lags­ins hafa nærri 15 millj­arð­ar streymt úr Ís­fé­lag­inu í Vest­manna­eyj­um til Guð­bjarg­ar og fjöl­skyldu. Hvorki hún né fjár­fest­ing­ar henn­ar koma fram í skýrslu sem unn­in var að beiðni Al­þing­is um eign­ir, eig­end­ur og fjár­fest­ing­ar stærstu út­gerð­ar­fé­laga lands­ins.

Mest lesið í mánuðinum

Sáu sárin sem hún faldi
1
ViðtalElsku Embla

Sáu sár­in sem hún faldi

Þann 7. júní verða fimm ár lið­in frá frá­falli Emblu Arn­ars Katrín­ar­dótt­ur. And­lát henn­ar var harma­fregn fyr­ir sam­fé­lag­ið, en fjöl­skyld­an sat eft­ir með sorg­ina. Löngu áð­ur en Embla fékk grein­ingu var fjöl­skyld­unni orð­ið ljóst að hún væri orð­in al­var­lega veik, en vegna þess hve þög­ul veik­ind­in voru tók tíma að fá áheyrn. Jafn­vel þá skorti skiln­ing á stöðu barns­ins, sem svipti sig lífi og var jörð­uð á fimmtán ára af­mæl­is­dag­inn sinn.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár