Formaður BÍ segir sýknudóm grafa undan fjölmiðlafrelsi

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir for­dæmir sýknu­dóm Lands­réttar í meið­yrða­máli Aðal­steins Kjart­ans­sonar blaða­manns gegn Páli Vil­hjálms­syni. „Er nið­ur­staða dóms­ins efn­is­lega sú að heim­ilt hafi verið að veit­ast opin­ber­lega að blaða­mönnum vegna frétta­skrifa þeirra með ósönn­uðum stað­hæf­ingum um alvar­lega refsi­verða hátt­semi af þeirra hálfu.“

Formaður BÍ segir sýknudóm grafa undan fjölmiðlafrelsi

Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir, for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands, segir nýlegan sýknu­dóm Lands­réttar í meið­yrða­máli Aðal­steins Kjart­ans­sonar gegn blogg­ar­anum Páli Vil­hjálms­syni grafa undan fjöl­miðla­frelsi og lýð­ræð­is­legu hlut­verki fjöl­miðla. 

„Með því að veita skot­leyfi á blaða­menn, sem sam­kvæmt dómnum eiga að þurfa að þola að það sé opin­ber­lega logið upp á þá alvar­legri refsi­verðri hátt­semi fyrir það eitt að vinna vinn­una sína. Slíkar árásir á orð­spor og starfs­heiður blaða­manna eru ekki aðeins til þess fallnar að fæla þá frá því að fjalla um til­tekin mál, heldur ætlað að beina athygli frá efni umfjöll­un­ar­innar og grafa þannig undan blaða­mennsku og lýð­ræði,“ skrifar Sigríður Dögg í skoð­anapistli sem birt­ist á Vísi í dag. 

Kærði ummæli á bloggsíðu

Aðal­steinn hafði stefnt Páli vegna ummæla sem sá síð­ar­nefndi hafði uppi um hann á blogg­síðu sinni og krafð­ist miska­bóta. Ummælin sem um ræddi sner­ust um það að Aðal­steinn og aðrir blaða­menn hefðu átt aðild að því að byrla Páli Stein­gríms­syni skip­stjóra ólyfjan og stolið síma hans. Gögnin úr sím­anum hefðu síðar verið notuð í frétta­flutn­ingi um svo­kall­aða skæru­liða Samherja. 

Ummæli Páls um Aðal­stein voru dæmd ómerk í hér­aði vorið 2024 og var blogg­ar­anum gert að fjar­lægja þau af síðu sinni og birta dóm­inn á síð­unni. 

Úrskurði Hér­aðs­dóms Reykja­víkur var snúið í Lands­rétti í lok júní og sagði í dóms­úr­skurð­inum að þótt ummæli Páls væru bein­skeytt og óvægin yrði að líta til þeirrar stað­reyndar að Aðal­steinn sætti, þegar ummælin féllu, rann­sókn lög­reglu.

Þá mátti Aðal­steinn, sem blaða­maður og opin­ber per­sóna gera ráð fyrir að þurfa að þola hvassa og óvægna gagn­rýni í kjöl­far eigin skrifa. Orð Páls voru því talin rúm­ast innan tján­ing­ar­frelsis hans og var hann því sýkn­aður af kröfum Aðal­steins.

Ummælin féllu að ófrægingarherferði Samherja

Sigríður Dögg bendir á að fyrir dómi hafi ekki verið deilt um það hvort ummæli Páls hafi verið sönn.

„Þvert á móti voru þau upp­login og féllu vel að ófræg­ing­ar­her­ferð sem Samherji hefur um margra ára skeið háð gegn blaða­mönn­unum Aðal­steini og Helga Seljan sem árið 2019 sviptu hul­unni af því er virð­ast vera stór­felldar mútu­greiðslur Samherja til namibískra stjórn­mála­manna, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti. Í fram­haldi af þeim frétta­flutn­ingi hóf Samherji skipu­lagða aðför að Aðal­steini og Helga sem hafði þann til­gang að grafa undan æru þeirra og starfs­heiðri og að veikja til­trú almenn­ings á þeim upp­lýs­ingum sem fram komu í fréttum af meintri refsi­verðri hátt­semi Samherja.“

Segir hún þá að um alvar­lega aðför að per­sónu Aðal­steins hafi verið að ræða með ummælum Páls. „Þau voru sett fram til að draga athygli almenn­ings frá hátt­semi Samherja í Namibíu og þaul­skipu­lagðri aðför útgerð­ar­innar gegn blaða­mönnum sem fjöl­miðlar upp­lýstu um í umfjöllun um Skæru­liða­málið svo­kall­aða árið 2021.“ 

„Má mögu­lega ganga lengra í árásum á blaða­menn?“
Sigríður Dögg Auð­uns­dóttir,
for­maður Blaða­manna­fé­lags Íslands er afar ósátt við nið­ur­stöðu Lands­réttar

Segir Sigríður Dögg að Páll Vil­hjálms­son viti það mæta­vel að engin af full­yrð­ingum hans sé sönn. „Samt lýgur hann alvar­legum lög­brotum upp á nafn­greinda blaða­menn. Lands­réttur kemst að þeirri hættu­legu nið­ur­stöðu að það megi hann gera án afleið­inga.“

Skotleyfi á sakborninga

Í dómnum er, sem fyrr segir, tekið fram að Aðal­steinn hafi sætt lög­reglu­rann­sókn þegar Páll skrif­aði ummæli sín. En Sigríður Dögg segir að með dómnum veiti Lands­réttur rann­sókn­inni, sem var á end­anum nið­ur­felld, tals­vert vægi.

„Þrátt fyrir þær alvar­legu athuga­semdir sem gerðar höfðu verið við rann­sókn­ina á fyrri stigum. Það er veru­lega alvar­legt í sjálfu sér að veita slíkt svig­rúm til að brigsla mönnum um refsi­verða hátt­semi sem ekki hefur sann­ast með dómi.

Það er enn alvar­legra þegar lög­reglu­rann­sóknin var til­efn­is­laus og ósam­rým­an­leg tján­ing­ar­frelsi hlut­að­eig­andi blaða­manna, líkt og Blaða­manna­fé­lag Íslands hefur bent á. Með því var í reynd aukið á íþyngj­andi áhrif lög­reglu­rann­sókn­ar­innar og þar með þá órétt­mætu skerð­ingu tján­ing­ar­frelsis sem blaða­menn­irnir sættu af völdum hennar.“

Þá hafi hingað til ekki haft áhrif í meið­yrða­málum hvort sá sem telur sig hafa orðið fyrir æru­meið­ingum hafi rétt­ar­stöðu sak­born­ings. Segir Sigríður Dögg að nið­ur­staðan í máli Aðal­steins gæti þannig haft þær alvar­legu afleið­ingar að nú sé skot­leyfi á alla sem fái rétt­ar­stöðu sak­born­ings í málum sem eru til rann­sóknar hjá lög­reglu.

„Og leyfi­legt sé að saka þá um alvar­lega glæpi, hvort sem þeir séu grun­aðir um að hafa framið þá eða aðrir sak­born­ingar í sama máli. Hvar dregur Lands­réttur lín­una? Við æru­meið­ingar? Eða má mögu­lega ganga lengra í árásum á blaða­menn? Má berja blaða­mann sem hefur rétt­ar­stöðu sak­born­ings í lög­reglu­rann­sókn ef sá sem beitir ofbeld­inu telur að blaða­mað­ur­inn hafi til þess unnið? Hvað með blaða­mann sem hefur ekki rétt­ar­stöðu sak­born­ings? Má hafa æruna af honum?“

Heimilt að veitast að blaðamönnum með ósönnuðum staðhæfingum

„Þótt nið­ur­staða dóms­ins sé að formi til sú að tján­ing­ar­frelsið hafi í þessu til­viki vegið þyngra en frið­helgi einka­lífs er nið­ur­staða dóms­ins efn­is­lega sú að heim­ilt hafi verið að veit­ast opin­ber­lega að blaða­mönnum vegna frétta­skrifa þeirra með ósönn­uðum stað­hæf­ingum um alvar­lega refsi­verða hátt­semi af þeirra hálfu,“ skrifar Sigríður Dögg. 

Segir hún að efn­is­lega feli dóm­ur­inn í sér að heim­ilt sé að bregð­ast við rétt­mætri umfjöllun blaða­manna með alvar­legum og órök­studdum árásum á orð­spor þeirra og starfs­heiður.

„Slíkar árásir eru ekki aðeins til þess fallnar að fæla blaða­menn frá því að fjalla um mál þar sem búast má við við­brögðum sem þessum heldur jafn­framt til þess fallnar að draga úr trú­verð­ug­leika blaða­manna og fjöl­miðla almennt og beina athygli frá efni fjöl­miðlaum­fjöll­unar og að per­sónum þeirra blaða­manna sem í hlut eiga.“

Slík for­dæmi séu til þess fallin að draga úr tján­ing­ar­frelsi blaðmanna, auk þess að grafa undan bæði blaða­mennsku og lýð­ræði. 

Að lokum kallar for­maður Blaða­manna­fé­lags­ins eftir því að Hæsti­réttur taki málið fyrir og skeri úr um hvort blaða­menn njóti ekki verndar gegn „upp­lognum árásum sem ætlað er að grafa undan trú­verð­ug­leika þeirra og starfs­heiðri.“


Fyr­ir­vari um hags­muni: Í frétt­inni er fjallað um atburði sem tengj­ast Heim­ild­inni og starfs­mönnum fjöl­mið­ils­ins beint.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár