Gleðiganga undir vökulu auga lögreglu

Kári Garð­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ´78, segir upp­lifun­ina hafa verið magn­aða á ólög­legri gleði­göngu í Búdapest. Þátt­tak­endum göng­unnar fjölg­aði úr 30 þús­und í 200 þús­und í ár. Lögregla var með við­búnað og greindi and­lit fólks til að beita sektum.

Gleðiganga undir vökulu auga lögreglu
Gleði­ganga í Búdapest Hópur frá Sam­tök­unum 78 sótti ólög­lega gleði­göngu. Mynd: Samtökin 78

„Þetta var í raun og veru alveg mögnuð upp­lifun fyrir mann eins og mig,“ segir Kári Garð­ars­son, fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ´78. Hann sótti gleði­göngu sem haldin var í Búdapest síð­ustu helgi þrátt fyrir bann yfir­valda við við­burð­inum. „Þetta er fyrsta gangan sem ég fer í sem er bönnuð – það er nátt­úr­lega magnað að segja þetta upp­hátt. Að það sé Evr­ópu­land sem banni Pride-göngu.“

Gergely Karácsony, borg­ar­stjóri Búdapest, greip til þess ráðs að leyfa göng­una sem borg­ar­við­burð. „Hann fór fram hjá lög­unum sem Viktor Orbán setti og stóð vel með skipu­leggj­endum í aðdrag­anda göng­unnar,“ segir Kári. 

Ákall frá skipu­leggj­endum göng­unnar, Budapest Pride, til alþjóða­sam­fé­lags­ins um að koma og styðja við­burð­inn kom í vor. Var það í kjöl­far þess að yfir­völd í Ung­verja­landi lögðu bann á við­burð­inn. Sex manna hópur frá Sam­tök­unum ´78 og Hinsegin dögum var við­staddur göng­una en hóp­ur­inn fór í ferð­ina á eigin kostnað. „Ég held að það hafi tek­ist mjög vel,“ segir Kári. 

Kári Garð­ars­sonFram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ´78.

Kári segir að fjöl­breyttur hópur hafi sótt göng­una: „Alveg frá því að vera aktíf­istar – Amnesty var með stóran hóp. Við hittum syst­ur­fé­lög okkar frá Svíþjóð, Danmörku og Noregi og kunn­ug­leg and­lit úr bar­átt­unni. Svo ekki síst almenni borg­ar­inn í Búdapest og Ung­verja­landi sem ég held að hafi hugsað með sér að nú væri tími til að stíga upp og mót­mæla.“

Lögreglan andlitsgreindi þátttakendur

Blaða­maður spyr hvort við­burð­ur­inn hafi verið öruggur í ljósi banns­ins. „Eftir á að hyggja var hann öruggur,“ segir Kári og bætir við: „Það voru örfáir and­mót­mæl­endur sem maður sá svart­klædda á leið­inni. En ég svo sem sá þá líka í Eist­landi og Litáen.“ Þessi hópur stóð til hliðar og mót­mælti göng­unni. Snemma í göng­unni lok­uðu þessir and­mót­mæl­endur brú sem átti að vera hluti af göng­unni. „Skipu­leggj­endur brugðu á það ráð að færa göng­una á aðra brú,“ segir Kári og heldur áfram: „Það var alveg mögnuð upp­lifun þegar skar­inn fór yfir þá brú og lét sér ekki segj­ast.“

„Það var alveg mögnuð upp­lifun þegar skar­inn fór yfir þá brú og lét sér ekki segj­ast
Kári Garð­ars­son
fram­kvæmda­stjóri Sam­tak­anna ´78

Þá var lög­reglan líka með mikla við­veru: „Hún var með mynd­bands­upp­töku­vélar til að and­lits­greina fólk,“ segir Kári en við­ur­lög við þátt­töku í göng­unni áttu að vera sektir. „Það er mjög lang­sótt að við Íslend­ingar fáum eitt­hvað í heima­bank­ann frá ung­verskum yfir­völdum,“ bætir hann við. Blaða­maður spyr hvort lög­reglan hafi verið á svæð­inu til þess að passa upp á þátt­tak­endur göng­unnar. Kári svarar: „Ég veit ekki alveg hvernig ég á að skil­greina það. Það var eitt­hvað sem fólk ótt­að­ist. Að ef and­mót­mæl­endur hefðu haft sig meira í frammi, að lög­reglan myndi þá standa meira til hliðar.“ Hann hafi ekki heyrt um til­felli þar sem lög­reglan hafi gripið inn í eða að ein­hverjar árásir hafi átt sér stað.

Fangelsisvist möguleiki

„Það situr eftir að skipu­leggj­end­urnir gætu átt yfir höfði sér árs fang­elsi sam­kvæmt lög­unum,“ segir Kári og einnig: „Ég get ímyndað mér að þau sem skipu­lögðu þetta séu stolt. En ábyggi­lega pínu­lítið hrædd um það hvert fram­haldið verður og hvað verði gert við þau sem stóðu að þessum frá­bæra við­burði.“

Budapest Pride hafa kallað eftir fjár­stuðn­ingi en Kári segir við­burð­inn bæði hafa verið dýr­ari í fram­kvæmd þar sem mun fleiri komu en vana­lega og svo vegna þess að við­burð­ur­inn var ólög­legur. Stjórn Hinsegin daga hafi keypt boli í göng­unni sem verða seldir á Hinsegin dögum í Reykja­vík til styrktar sam­tök­unum úti. „Það eru ekki stórar fjár­hæðir en við reynum eins og við getum að styðja við þetta.“ 

Tónninn að breytast

„Það horfir hrika­lega við okkur,“ segir Kári og heldur áfram: „Það er alveg ótrú­legt að það sé vegið að mann­rétt­indum og funda­frelsi og almennt að grund­vall­ar­rétti fólks til að koma saman.“ Hann segir það sorg­legt að slíkt sé gert undir því yfir­skini að vernda börn. „Þetta er eitt­hvað sem við tökum mjög alvar­lega. Enda sá maður að við­burð­ur­inn, sem er vana­lega með þrjá­tíu þús­und manns í Búdapest, var 200 þús­und núna.“ Í Ung­verja­landi hefur lögum verið breytt í skóla­kerf­inu. Kári segir að bók­menntir sem sýni hinseg­in­leika þurfi til að mynda að vera í svörtu plasti.

„Því miður er Ung­verja­land ekki eitt um þetta. Við höfum séð þetta í öðrum löndum, bæði í Evrópu og Ameríku. Maður er sleg­inn. Langar að hlæja – þetta er svo fárán­legt – en grátur er eig­in­lega nær. Þetta er skelfi­leg staða.“ 

Blaða­maður spyr hvort Sam­tök­unum ´78 þyki lík­legt að slíkt bakslag geti orðið hér á landi. Kári segir það lang­sótt að bönn við gleði­göngu yrðu inn­leidd en að tónn­inn í umræð­unni sé þó að breyt­ast. „Það á ekki bara við í mál­efnum hinsegin fólks heldur líka í málum útlend­inga og hæl­is­leit­enda. Það er verið að þrengja að og orð­ræðan er oft mjög skrítin. Þetta helst allt í hendur – rétt­indi jað­ar­settra hópa.“ 

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Rógburður og ruglingur í kosningabaráttunni í Bandaríkjunum
4
ErlentBandaríki Trumps

Róg­burður og rugl­ingur í kosn­inga­bar­átt­unni í Banda­ríkj­unum

Rang­færslum var dreift með orðrómi um veik­indi fram­bjóð­anda, kosn­inga­aug­lýs­ing birt­ist í rangri borg og grun­sam­legar send­ingar til kosn­inga­skrif­stofu inni­héldu duft. Allt setti þetta svip sinn á kosn­inga­bar­átt­una í Banda­ríkj­unum und­an­farna viku. Í ofaná­lag hefur Donald Trump for­seti boðað pen­inga­greiðslur til kjós­enda skömmu fyrir þing­kosn­ing­arnar 3. nóv­em­ber.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár