Hagar hagnast meira og segja „meðbyr“ í rekstri verslana

Samhliða 6% hækkun mat­vöru­verðs á einu ári eykst fram­legð Haga, sem reka Bónus, Hagkaup og Olís, um 22% milli ára.

Hagar hagnast meira og segja „meðbyr“ í rekstri verslana
Finnur Oddsson For­stjóri Haga fagnar meiri hagn­aði á mat­vöru­mark­aði. Mynd: Origo

„Það er með­byr í rekstri versl­ana og vöru­húsa á Íslandi,“ segir Finnur Oddsson, for­stjóri Haga, sem reka meðal ann­ars versl­anir Bónus, Hagkaupa og Olís, í fjár­festa­kynn­ingu eftir góðan fyrsta árs­fjórð­ung.

Það sem Finnur lýsir sem með­byr er stór­bætt rekstr­ar­af­koma. Seldum stykkjum fjölg­aði um 1%, en tekjur hækk­uðu um 9,2%. Fram­legðin eykst veru­lega á milli ára, eða um 22%, og fer úr 9,5 millj­örðum í 11,6 millj­arða, sem leiðir á end­anum af sér 4 millj­arða króna hagnað á fyrsta fjórð­ungi, úr 3,2 millj­arða hagn­aði á sama tíma­bili í fyrra.

Mat­væla­verð á Íslandi hefur hækkað um 6% síð­ustu tólf mán­uði, sem nokkuð umfram almenna verð­bólgu, sem hefur verið 4,2%. Hækkun mat­ar­verðs er því hluti af því sem orsakar háa vexti á hús­næð­is­lánum og hækk­andi höf­uð­stól verð­tryggðra lána.

Afkoma Haga lit­ast að ein­hverju leyti af inn­komu fær­eysku SMS-versl­ana­keðj­unni í sam­stæðu Haga og umtals­verðri lækkun olíu­verðs á milli ára.

…

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Kapítalisminn er siferðislaus og fer versnandi.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Íslenski verðbólgudraugurinn

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Viðskipti

Lands­bank­inn hagn­að­ist um 33 millj­arða en stjórn­endur áhyggju­fullir

Hagnaður Lands­bank­ans jókst um 3,7 millj­arða króna á fyrstu níu mán­uðum árs­ins og nam 33,1 millj­arði. Stjórn­endur bank­ans hafa áhyggjur af mögu­legu útlánatapi vegna versn­andi stöðu bygg­ing­ar­fyr­ir­tækja, sem finna fyrir háum vöxtum og hæg­ari sölu íbúða. Rík­is­sjóður hefur fengið stærstan hluta þeirra tæp­lega 35 millj­arða króna sem greiddir hafa verið í arð á árinu.

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár