Hæ hó og jibbí jei þrátt fyrir nokkra dropa

Þjóð­há­tíð­ar­deg­inum var fagnað um allt land í gær. Ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar mynd­aði lífið í mið­borg Reykja­víkur.

Hæ hó og jibbí jei þrátt fyrir nokkra dropa

Lands­menn létu veðrið ekki aftra sér og héldu þjóð­há­tíð­ar­dag­inn hátíð­legan víða um land.

Á Aust­ur­velli flutti for­seti Íslands, Halla Tóm­as­dóttir, ávarp og vakti máls á stöðu heims­mála. „Vitundin um krefj­andi úrlausn­ar­efni yfir­gnæfir þó alls ekki trú mína á að þessir umbrota­tímar færi okkur tæki­færi til að standa okkur betur,“ sagði for­seti.

„Þetta er ég sann­færð um því í starfi mínu er ég svo lánsöm að fá að umgang­ast ótal margt fólk sem stígur fram í nafni kær­leik­ans,“ bætti hún við. „Það er úti um allt, ósér­hlífna fólkið sem oft heyr­ist ekki hátt í en lætur gott af sér leiða á hverjum degi. Eins og ég hef áður sagt þá kýs ég að kalla þetta fólk ridd­ara kær­leik­ans og ég ítreka að það geta allir valið að vera í því liði.“

Reyk­vík­ingar nutu svo lífs­ins í mið­borg­inni, þrátt fyrir smá rign­ingu og var ljós­mynd­ari Heim­ild­ar­innar við­staddur til að festa hátíð­ar­höldin á filmu.

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár