Forsprakki útifundar játaði fjárdrátt á leikskólanum Klettaborg

Sigfús Aðal­steins­son, stofn­andi hóps­ins Ísland - þvert á flokka, sem stendur fyrir úti­fundum um hæl­is­leit­endur, ját­aði á sig fjár­drátt frá leik­skól­anum Kletta­borg þegar hann var for­stöðu­maður þar. Hann vill ekki dæma hvort brot af því tagi séu nógu alvar­leg til að inn­flytj­endur sem gerð­ust sekir um þau ætti að senda úr landi.

Forsprakki útifundar játaði fjárdrátt á leikskólanum Klettaborg
Sigfús Aðal­steins­son For­sprakki sam­stöðu­fundar á Aust­ur­velli hvetur til breyttrar stefnu í útlend­inga­málum. Mynd: Golli

Sigfús Aðal­steins­son, fast­eigna­sali og stofn­andi hóps­ins Ísland –þvert á flokka, dró sér hund­ruð þús­unda króna þegar hann var for­stöðu­maður leik­skól­ans Kletta­borgar í byrjun tíunda ára­tug­ar­ins. Í við­tali við Heim­ild­ina seg­ist hann vilja að dóms­kerfið dragi lín­una þegar kemur að brotum inn­flytj­enda og að þeir sem ger­ist sekir um alvar­leg brot verði sendir úr landi.

Sigfús vill ekki dæma um hvort hann telji fjár­drátt­inn hafa verið alvar­legt brot. „Ég hugsa að það sé brot. Hvort að það er alvar­legt, ég ætla nú ekki að fara út í þessa sögu en ég er með önnur mark­mið í dag. Þarna eru þrjá­tíu og eitt­hvað ár síðan þetta gerð­ist,“ segir hann og bætir því við að hann hafi und­an­farna ára­tugi sýnt fyrir hvað hann stendur.

Sigfús var for­stöðu­maður leik­skól­ans Kletta­borgar í Graf­ar­vogi til árs­ins 1994 þegar bók­halds­gögn sýndu að mikil óreiða væri á fjár­málum skól­ans. Jón G. Tómasson, þáver­andi borg­ar­rit­ari, sagði í …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir (4)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • JE
    Jóhann Einarsson skrifaði
    Hjartanlega sammála Önnu Bjarnadóttur. Hef sjaldan lesið jafn mikið af mótsögnum og bulli eins og hjá þessum Spánar fasteignasala. Hef farið mikið til Spánar og spaunskumælandi staða á lífsleiðinni og tek hjartanlega undir athugasemdir Ö. B.
    1
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Sigfús segir: „Við viljum og erum tilbúin að taka á móti fólki sem kemur hingað að vinna og aðlagast okkar menningu. Það er alveg klárt. En við erum ekki afskaplega hrifin af því að fólk komi hingað, búi sér til sér menningu þar sem það umgengst ekki Íslendinga og samlagast okkur ekki og vinnur ekki til þjóðfélagsins.“ ÞETTA er alveg KOSTULEGT! Íslendingar á Spáni umgangast oft á tíðum aðeins aðra Íslendinga og búa þar með til sína eigin menningu. Þau samlagast bara hvort öðru en ekki Spánverjum eða spænskri menningu og eru í langflestum tilfellum ekki í vinnu og gefa því lítið til baka til samfélagsins HELDUR BARA TAKA!
    8
  • Anna Bjarnadóttir skrifaði
    Hræsni Sigfúsar og barnaleg sjálfhverfa kemur í ljós þegar umræðan beinist að þætti hans í innflutningi á efnahagsflóttamönnum til Spánar frá hinum ríku löndum í norðri sem er þyrnir í augum vaxandi fjölda Spánverja. Þau eru ásökuð um að hugsa ekki nægilega vel um þann hluta þjóðar sinnar sem sökum langvarandi veikinda, fötlunar eða aldurs hafa neyðst til að yfirgefa vinnumarkaðinn og vegna fátæktar flýja til Spánar þar sem verðlag er lægra og leggjast þar eins og hýslar á spænskt velferðarkerfi og innviði. Þau læra yfirleitt ekki spænsku eða aðlagast spænskri menningu, en eru sum hver þekkt fyrir að vera drykkfeld, hávaðasöm, ótilitsöm, frek, dónaleg og krefjast þess að fá notið menningar eigin heimalands, svo sem mataræðis á Spáni. Þessir mikli straumur flóttafólks frá Norðrinu til Spánar veldur til dæmis því að húsnæðisverð á Spáni hefur hækkað óheyrilega og hafa verið fjölmenn mótmæli víða á Spáni vegna þessa. Ættu Spánverjar þá ekki að gera sömu kröfur til landflótta Íslendinga á Spáni? Ef Sigfús er svona mikið á móti flóttafólki ætti hann nú bara að byrja á sjálfum sér og snarhætta sölu fasteigna til útlendinga á Spáni. Af hverju finnst Sigfúsi í lagi að íslenskir efnahags og jafnvel loftlagsflóttamenn flytji til Spánar en hefur svona mikið á móti því að þessar örfáu hælisleitendur sem hingað koma leiti hér skjóls vegna stríðsátaka í heimalöndum sínum og að ættingjar þeirra; börn, foreldrar… geti sameinist fjölskyldum sínum að hann finni hjá sér þörf til að mótmæla af þvílíku offorsi á Austurvelli? Þetta er ekkert annað en hræsni.
    11
  • Vel skrifuð grein.
    En hún er löng, og fólk flest nennir ekki að lesa. Fjárdráttur. Drullusokkur. Búið, næsta.
    úff....
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár