Neytendastofa sektar vegna gjaldtöku á bílastæðum

Neyt­enda­stofa hefur sektað fjögur fyr­ir­tæki sem sinna gjald­töku á bíla­stæðum fyrir ólög­lega við­skipta­hætti og upp­lýs­inga­gjöf.

Neytendastofa sektar vegna gjaldtöku á bílastæðum

Neyt­enda­stofa hefur ákveðið að beita fjögur fyr­ir­tæki, sem sinna bíla­stæða­þjón­ustu við gjald­skyld bíla­stæði, stjórn­un­ar­sektum. Voru upp­lýs­inga­gjöf og við­skipta­hættir fyr­ir­tækj­anna ekki talin sam­ræm­ast lögum. Hæstu sekt­ina fær Parka, eða milljón krónur en önnur fyr­ir­tæki sem voru sektuð eru Isavia, EasyPark og Green Parking. 

„Neyt­enda­stofa komst að þeirri nið­ur­stöðu að fyr­ir­tækin hefðu brotið gegn lögum um góða við­skipta­hætti sem og reglum um verð­merk­ingar með því að veita ekki upp­lýs­ingar um öll gjöld tengd stæð­unum.

Þá taldi stofn­unin um að ræða brot gegn lögum í þeim til­vikum þar sem afmörkun gjald­skyldra bíla­stæða var ekki nægi­lega skýr auk þess sem það teld­ust vill­andi við­skipta­hættir að láta líta út fyrir að sjálf­virk greiðslu­kerfi eða gjald­taka væru til staðar án þess að taka fram að slíkt þyrfti að virkja sér­stak­lega eða kerfið ekki til staðar,“ segir í til­kynn­ingu á vef Neyt­enda­stofu.

Í til­felli Parka ályktaði eft­ir­lits­stofn­unin að fyr­ir­tækið hefði brotið gegn reglu­gerð um við­skipta­hætti „sem telj­ast undir öllum kring­um­stæðum órétt­mætir með því að upp­lýsa neyt­endur rang­lega um að þjón­usta þess sé end­ur­gjalds­laus.“

EasyPark var meðal ann­ars sektað fyrir að birta ekki upp­lýs­ingar um kostnað við notkun smá­forrits félags­ins á miðum á greiðslu­vélum Bíla­stæða­sjóðs Reykja­víkur.

Green Parking var gagn­rýnt fyrir að til­greina ekki van­greiðslu­gjald á bíla­stæðum í Hamra­borg og við Land­spít­al­ann á Hring­braut. En það braut í bága við reglur um verð­upp­lýs­ingar við sölu á þjón­ustu. 

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár