0,0 prósent alkóhól

Eft­ir­spurn eftir óáfengum bjór eykst stöðugt. Í fyrra náði aukn­ingin níu pró­sentum á heims­vísu. Því er spáð að þessi þróun haldi áfram á kom­andi árum og dönsk bjór­fyr­ir­tæki bregð­ast við.

Sala á óáfengum bjór eykst ár frá ári og í fyrra jókst salan, á heims­vísu, um níu pró­sent frá árinu áður. Það er ekki síst ungt fólk sem kaupir og drekkur þann óáfenga, létt­bjór­inn eins og hann er kall­aður. Stórir bjór­fram­leið­endur, til dæmis Carlsberg, leggja nú æ meiri áherslu á fram­leiðslu létt­bjórs, úrvalið eykst stöðugt enda sam­keppnin hörð.

Danska ölið

Carlsberg-sam­steypan danska er meðal stærstu bjór­fram­leið­enda heims með rúm­lega 40 þús­und starfs­menn. Höf­uð­stöðv­arnar eru í Danmörku og Danir halda fast í að Carlsberg sé danskur þótt í dag sé salan í Danmörku ein­ungis 5 pró­sent af heild­ar­fram­leiðsl­unni sem fer fram í 35 löndum víða um heim.

Carlsberg-fyr­ir­tækið var stofnað í Kaup­manna­höfn árið 1847. Stofn­and­inn var Jacob Christian Jacobsen (1811–1887). Faðir hans var ölgerð­ar­maður og á yngri árum vann son­ur­inn Jacob Christian við fram­leiðsl­una og tók síðar við ölgerð­inni. Jacob ferð­að­ist tals­vert og kynnt­ist þá lag­er­öli en á þessum tíma fram­leiddu og drukku Danir nær ein­göngu hvítöls­bjór, sem þrátt fyrir nafnið er dökkur á lit og brugg­aður með annarri aðferð en lag­er­ölið. Eftir að Louis Pasteur fann upp ger­ilsneyð­ing­una árið 1862 sá Jacob fram á að með því að nota ger­ilsneyð­ingu við fram­leiðslu lag­er­öls yrðu gæðin langtum meiri en áður. Hann stofn­aði sér­staka rann­sókn­ar­stofu Carlsberg Laborator­ium árið 1875 og þar varð til ný teg­und af gerli, Saccharomyces carlsbergensys, sem átti eftir að verða mik­il­vægur þáttur í bjór­fram­leiðslu víða um heim. Bjór fram­leiddur með þessum gerli kall­ast und­ir­gerjaður vegna þess að ger­ill­inn sígur til botns meðan á gerjun stendur.

Gaf þjóðinni safn sitt 

Upp­haf­lega var ölgerð Jacob Christian Jacobsen í miðbæ Kaup­manna­hafnar, þar sem faðir hans hafði haft sína ölgerð. Árið 1847 byggði Jacob nýja verk­smiðju, eða rétt­ara sagt verk­smiðju­hverfi, í Valby sem þá var fyrir utan Kaup­manna­höfn og stofn­aði jafn­framt nýtt fyr­ir­tæki, Carlsberg. Nafnið er að hluta skírt eftir syn­inum Carl. Ástæðan fyrir stað­ar­val­inu í Valby var sú að þar var gott upp­sprettu­vatn. Verk­smiðju­bygg­ing­arnar þóttu ein­stak­lega vand­aðar og inn­gang­ur­inn að hverf­inu, Fíla­hliðið svo­nefnda, sér­lega glæsi­legur, þó án íburðar.

Undir stjórn Jacob Christian Jacobsen varð Carlsberg að stór­veldi á sínu sviði og árið 1876 stofn­aði Jacob Christian ásamt eig­in­kon­unni Laura Holst (1819–1911) Carlsberg-sjóð­inn sem hefur allar götur síðan styrkt margs konar menn­ingar- og lista­starf­semi, og enn fremur veitt miklu fé til aðstoðar fátækum. Sonurinn Carl var mik­ill list­unn­andi og ákafur safn­ari. Hann ákvað að safn sitt skyldi verða í eigu dönsku þjóð­ar­innar (eins og hann sjálfur komst að orði) og árið 1897 var safn hans opnað almenn­ingi í nýreistu húsi fast við Tívoli og fékk nafnið Ny Carlsberg Glyp­to­tek. Safnið er enn til húsa á sama stað og safn­húsið er í margra augum ein glæsi­leg­asta bygg­ing borg­ar­innar og safnið ein af skraut­fjöðrum danskra safna. 

Árið 2008 var öll fram­leiðsla Carlsberg flutt til Fredericia á Jótlandi, en rétt er að nefna að árið 1970 sam­ein­uð­ust Carlsberg og Tuborg. Sam­ein­aða fyr­ir­tækið fékk nafnið De Forenede Bryggerier A/S. Saga þessa risa á dönskum og síðar alþjóð­legum mark­aði verður ekki frekar rakin  hér en eins og áður var nefnt er Carlsberg, eins og fyr­ir­tækið er yfir­leitt kallað, meðal þeirra stærstu í heimi.

 Breytingar á eftirspurn 

Árið 2016 fóru bjór­fram­leið­endur og selj­endur víða um heim að veita athygli breyt­ingum. Eft­ir­spurn eftir óáfengum bjór, létt­bjór, fór vax­andi en sala á sterk­ari bjór (algengur styrk­leiki 4,6 pró­sent) dróst að sama skapi saman. Skil­grein­ingin óáfengur bjór gefur til kynna 0,0 pró­sent alkó­hól, en það er þó ekki í öllum til­vikum svo, víða er bjór með styrk­leika allt að 0,5 pró­sent skil­greindur sem óáfengur.  Þess má geta að Egils Pilsner, sem hefur verið fram­leiddur óbreyttur frá 1917, er 2,25 pró­sent og hefur til þessa verið skil­greindur sem óáfengur.

Þessi breyt­ing sem fyrst varð vart fyrir tæpum 10 árum hefur undið upp á sig. Salan á létt­bjór hefur árlega auk­ist þótt ,,venju­legur“ bjór hafi, á heims­vísu, yfir 90 pró­sent af heild­ar­söl­unni. Allir stærstu bjór­fram­leið­endur heims leggja aukna áherslu á fram­leiðslu létt­bjórs og úrvalið eykst því stöðugt.

Spá áframhaldandi aukningu

Breska grein­ingar- og talna­könn­un­ar­fyr­ir­tækið IWSR (International Wine & Spirit Research), sem er meira en hálfrar aldar gam­alt, safnar upp­lýs­ingum um fram­leiðslu og sölu áfengra drykkja, og létt­bjórs í 160 löndum í öllum heims­álfum. Í nýrri skýrslu gerir IWSR ráð fyrir að vöxtur í fram­leiðslu næstu ára verði bruggun létt­bjórs.

Heild­ar­fram­leiðsla á bjór í heim­inum dróst saman á síð­asta ári en salan á létt­bjór jókst eins og áður var nefnt. Sér­fræð­ingar IWSR telja ástæðu  minni sölu á sterkum bjór tengj­ast breyttum lífs­stíl. Þessi breyt­ing teng­ist einkum fólki sem fætt er á árunum 1995–2012, sem oft er kallað Z-kyn­slóðin.

Stundum er haft á orði að langan tíma taki að snúa stóru skipi. Þetta á kannski vel við um breytt við­horf varð­andi bjór. Fyrir ekki ýkja mörgum árum lá við að sá ein­stak­lingur sem ekki drakk bjór og annað áfengi þætti öðru­vísi, jafn­vel skrýt­inn. Þannig er það ekki lengur.

Margt athygl­is­vert kemur fram í skýrslu IWSR. Meðal ann­ars það að Ind­verjar juku viskídrykkju sína um 6 pró­sent á síð­asta ári og því jafn­framt spáð að árið 2027 verði Indland stærsti mark­aður skoskrar viskífram­leiðslu. Það hefði ein­hvern tíma þótt saga til næsta bæjar.

Kjósa
30
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár