Stofnaði sinn eigin miðil um fjármál og fótbolta

Sævar Þór Sveins­son setti sér það mark­mið að skrifa og birta eina grein á viku um fjár­mál íþrótta­heims­ins fram að útskrift úr háskóla. Grein­arnar urðu 35 tals­ins og hefur Sævar í kjöl­farið opnað sinn eigin miðil.

Stofnaði sinn eigin miðil um fjármál og fótbolta
Sævar Þór Sveins­son Er stofn­andi UTAN VALLAR, mið­ils sem fjallar um allt sem við­kemur fjár­málum og íþróttum. Sævar ákvað að stofna mið­il­inn eftir að hann skrif­aði 35 greinar um fjár­mál í íþrótta­heim­inum og birti á sínum eigin sam­fé­lags­miðlum.

Ásíðasta ári ákvað hinn 23 ára gamli Sævar Þór Sveins­son að skora á sjálfan sig með því að skrifa og birta 35 greinar um fjár­mál í íþrótta­heim­inum. Hann seg­ist hafa fengið auk­inn áhuga á því sem ger­ist utan vallar í háskóla­námi sínu í við­skipta­fræði og lög­fræði. 

Skoraði á sjálfan sig

Knatt­spyrna hefur leikið stóran þátt í lífi Sævars frá barns­aldri. Hann æfði sjálfur um tíma, sækir reglu­lega leiki með hverf­is­fé­lag­inu sínu og fylgist með gangi mála erlendis. Áhuginn á því sem ger­ist utan vallar jókst þó til muna eftir að Sævar hóf skóla­göngu sína við Háskól­ann í Reykja­vík. Þar lærði hann fyrst lög­fræði með við­skipta­fræði sem auka­grein og svo við­skipta­fræði með lög­fræði sem auka­grein. 

Sævar ÞórFann auk­inn áhuga á því sem ger­ist utan vallar eftir að hann hóf náms­göngu sína hjá Háskól­anum í Reykja­vík þar sem hann lærði bæði við­skipta­fræði og lög­fræði.

Í frí­tíma sínum …

Kjósa
2
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár