Livio gert að greiða stofnanda Sunnu frjósemisstofu 24,8 milljónir

Ingunn Jóns­dóttir, stofn­andi Sunnu frjó­sem­is­stofu, vann mál gegn Livio í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur en Livio hélt því fram að Ingunn hefði brotið gegn sam­keppn­is­hömlum til þriggja ára sem hún hefði skrifað undir eftir að hún lét af störfum hjá fyr­ir­tæk­inu.

Livio gert að greiða stofnanda Sunnu frjósemisstofu 24,8 milljónir

Ingunn Jóns­dóttir, stofn­andi frjó­sem­is­stof­unnar Sunnu og fyrr­ver­andi frjó­sem­is­læknir hjá Livio, vann í vik­unni mál sem hún höfð­aði gegn Livio í Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Máls­at­vik má rekja til þess þegar Ingunni var sagt upp hjá Livio í júlí 2019, en hún taldi upp­sögn­ina vera ólög­mæta og höfð­aði því mál gegn fyr­ir­tæk­inu. Þar krafiðst hún meðal ann­ars þess að fá greitt fyrir eign­ar­hlut sinn í móð­ur­fyr­ir­tæki Livio Reykja­vík, IVF hold­ing, en í því átti hún 19 pró­senta hlut. 

Mátti ekki fara í samkeppni við Livio í þrjú ár

Í kaup­samn­ingnum um eign­ar­hlut­inn var mælt fyrir um trún­að­ar­skyldu og sam­keppn­is­hömlur Ingunnar sem skyldu gilda í þrjú ár frá febr­úar 2021. En þá fengi hún greiddar eft­ir­stöðvar kaup­verðs eign­ar­hlut­ans – 20 pró­sent hans að and­virði 23,4 millj­óna króna – ef hún upp­fyllti skyldur sínar.

Meðal þess sem Ingunn mátti ekki gera var að taka beint eða óbeint þátt í starf­semi á Íslandi sem væri svipuð starf­semi Livio, að er starf­semi á sviði tækni­frjóvg­un­ar­með­ferða. Henni var þó heim­ilt að starfa á sviði lækn­inga eða kven­sjúk­dóma­fræða á sjúkra­húsi eða heilsu­gæslu­stöð. Þá mátti hún ekki hafa afskipti af eða reyna að lokka frá Livio við­skipta­vini eða starfs­menn. 

Eiginmaðurinn stofnaði Reykjavik IVF

Í jan­úar 2023 stofn­aði eig­in­maður Ingunnar einka­hluta­fé­lagið Reykja­vik IVF, en til­gangur þess er heil­brigð­is­þjón­usta. Þá stofn­aði Reykja­vik IVF félagið Evuhús í des­em­ber 2023, en til­gangur þess var sagður að starf­rækja frjó­sem­is­mið­stöð og tengda starf­semi. Nafni Evuhúss var breytt í Sunna Frjósemi ehf. í maí 2024.

Í jan­úar 2024 krafð­ist Livio þess að fá eft­ir­stöðvar eign­ar­hlut­ans greiddar á þeim grund­velli að með stofnun félag­anna hefði Ingunn brotið gegn sam­keppn­is­á­kvæði kaup­samn­ings­ins. Var þar vísað í stofnun Reykja­vik IVF auk þess sem Livio sagði Ingunni og mann hennar hafa talað um það opin­ber­lega að þau hygð­ust opna stofu á sviði tækni­frjóvg­ana.

Athafnir eiginmannsins óskyldar

Að því er segir í nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur segir að ekki verði ráðið af kaup­samn­ingnum að athafnir eig­in­manns Ingunnar eða ann­arra en hennar sjálfrar teld­ust til brots á skyldum hennar.

„Fyrr­nefndar athafnir eig­in­manns stefn­anda geta því ekki leitt til álykt­unar um að stefn­andi telj­ist hafa fyr­ir­gert rétti sínum til greiðsl­unnar sem deilt er um í mál­inu. Þá hefur stefndi ekki fært sönnur á að stefn­andi hafi tekið þátt í und­ir­bún­ings­at­höfnum vegna opn­unar frjó­sem­is­mið­stöðv­ar­innar fyrr en eftir að gild­is­tími sam­keppn­is­haml­anna hafði runnið sitt skeið,“ segir í dómnum. 

En það var fyrst í færslu á Facebook og í frétt á Vísi í mars 2024 sem það kom fram opin­ber­lega að Ingunn væri þátt­tak­andi í und­ir­bún­ingi opn­unar nýrrar frjó­sem­is­mið­stöðvar. Þá var meira en einn og hálfur mán­uður lið­inn frá því að sam­keppn­is­höml­urnar liðu undir lok. Sunna frjó­sem­is­stofa opn­aði svo haustið 2024. 

Livio var því gert að greiða Ingunni fyrir eign­ar­hlut­ann, alls 24,8 millj­ónir auk drátt­ar­vaxta, og 1,3 millj­ónir í máls­kostnað.

Kjósa
14
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár