Climeworks selt 380 þúsund einingar – aðeins afhent um þúsund

Climeworks hefur selt 380 þús­und kolefn­is­ein­ingar til almenn­ings og fyr­ir­tækja en aðeins afhent um 1.100 ein­ingar. Climworks til­kynnti upp­sagnir 106 starfs­manna um miðja vik­una, skömmu eftir að Heim­ildin upp­lýsti að föngun fyr­ir­tæk­is­ins væri undir þús­und tonnum árlega.

Climeworks selt 380 þúsund einingar – aðeins afhent um þúsund
Climeworks er með loftsugu­ver sín hér á landi. Mynd: Golli

Climeworks til­kynnti á mið­viku­dag að fyr­ir­tækið ætlar segja upp 106 starfs­mönnum. Flestar upp­sagnir verða í Sviss. Engum hefur veirð sagt upp hér á landi, sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá fram­kvæmda­stjóra Climeworks á Íslandi, en hér eru sex stöðu­gildi. 

Jan Wursbacher, annar stofn­andi og for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, segir upp­sagn­irnar til komnar vegna gríð­ar­legs vaxtar fyr­ir­tæk­is­ins síð­ustu ár, í við­tali við við­skipta­blaðið Bloomberg. Tæplega fimm hund­ruð störf­uðu hjá fyr­ir­tæk­inu fyrir upp­sagnir og því 22 pró­sent starfs­manna sagt upp. Climeworks hefur skuld­bundið sig til þess að fanga 380 þús­und tonn af CO2 fyrir fjölda ein­stak­linga og fyr­ir­tækja, en áætl­anir þess um bygg­ingu á stærsta loft­föng­un­ar­veri í heimi í Banda­ríkj­unum er í upp­námi út af sparn­að­ar­að­gerðum rík­is­stjórn­ar­innar þar í landi. Óljóst er hvernig fyr­ir­tækið hyggst standa við kolefn­is­skuld­bind­ingar sínar. 

Selt 380 þúsund einingar

Climeworks hefur selt …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár