Kókómjólk á tilboðsverði af allt öðrum ástæðum

Kókó­mjólk hefur verið fádæma vin­sæl meðal lands­manna í rúm­lega hálfa öld og drekka Íslend­ingar um níu millj­ónir Kókó­mjólk­ur­ferna árlega. Þeir sem stund­uðu njósnir fyrir Björgólf Thor Björg­ólfs­son árið 2012 töldu að það væri til­valið að fela upp­töku­mynda­vél inni í tómri fernu af Kókó­mjólk.

Kókómjólk á tilboðsverði af allt öðrum ástæðum
Falin mynda­vél Það var í einni svona fernu af Kókó­mjólk sem fal­inni mynda­vél hafði verið komið fyrir. Mynd: Aðalsteinn Kjartansson

Kókó­mjólk birt­ist í nýju hlut­verki í vik­unni þegar greint var frá því í Kveik að menn sem stund­uðu njósnir fyrir Björgólf Thor Björg­ólfs­son földu mynda­vél í Kókó­mjólk­ur­fernum sem komið var fyrir í bíla­leigu­bílum fyrir utan lög­manns­stof­una Landslög í Borg­ar­túni árið 2012.

Þrátt fyrir að málið sjálft sé grafal­var­legt hefur einnig verið nokkuð um það á sam­fé­lags­miðlum að fólk hafi hent gaman af þess­ari notkun á Kókó­mjólk­ur­fernum. Lóa­borator­íum birti til að mynda skop­mynd þar sem spurt er hvað sé minnst grun­sam­leg­ast í heimi, og svarið vit­an­lega: Kókó­mjólk. 

Algjör tilviljun

Aðal­steinn H. Magn­ús­son, sölu- og mark­aðs­stjóri MS, hefur ekki farið var­hluta af þessu. „Það er bara fínt að Kókó­mjólkin fái athygli. Við erum ánægð ef fólk sér Kókó­mjólk­ina í léttu ljósi,“ segir hann. Aðspurður hvort þau hygg­ist reyna að nýta þessa óvæntu athygli á ein­hvern hátt í mark­aðs­setn­ingu segir hann það af og frá, þau muni ekki blanda sér í þetta mál. …

Kjósa
24
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Allt af létta

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár