„Annaðhvort treystir fólk þér eða ekki"

Erika Fatland er norskur rit­höf­undur sem skrifar ferða­bækur. Hún skrifar ekki bara um ferða­lagið sjálft heldur kafar hún djúpt ofan í sögu land­anna sem hún ferð­ast til og útkoman er blanda af mjög per­sónu­legum upp­lif­unum og ævin­týrum í bland við sögu­legan fróð­leik og stað­reyndir.

„Annaðhvort treystir fólk þér eða ekki"
Erika Fatland Mynd: Agnete Brun

Erika er mennt­aður mann­fræð­ingur og á ferl­inum hefur hún skrifað átta bækur – meðal ann­ars um fyrrum Sovétríkin í Mið-Asíu, löndin sem liggja að landamærum Rúss­lands og ferða­lag um Himalaja-fjöllin. Bækurnar hennar eru blanda af blaða­mennsku, mann­fræði­legri innsýn og persónulegri frásögn. Erika segir að ferðalög hennar hefj­ist alltaf með spurn­ingu. Þegar hún vann að bókinni Sovi­etistan voru það fimm ríki Mið-Asíu sem vöktu áhuga hennar; Úsbekistan, Túrk­menistan, Tadsík­is­tan, Kirgistan og Kasakstan. „Ég var mjög for­vitin að vita hvernig það væri að ferðast í þessum löndum. En ég vildi líka kom­ast að því hvernig þessi lönd höfðu mótast af því að hafa verið hluti af Sovétríkj­unum og …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bókmenntahátíð 2025

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár