Á milli tveggja heima

Það getur verið flókið að standa á mörkum tveggja menn­ing­ar­heima. Kuluk Helms lista­kona á græn­lenska móður og danskan föður svo hún kann­ast vel við það. Hún segir flækju­stigið stig­magn­ast vegna valda­ó­jafn­vægis á milli land­anna þar sem rætur hennar liggja.

Á milli tveggja heima
Kuluk Helms Mynd: Golli

Á þessu augna­bliki líður mér eins og ég hafi getu til að skilja heim­inn á ólíkan hátt vegna þess að ég hef þurft að sigla á milli þess­ara tveggja heima. En ég held að margir þurfi reyndar að gera það vegna þess að almennt leikur fólk oft mörg hlut­verk í líf­inu. Ég held að í mínu til­felli hafi þetta verið flókið vegna þess valda­ó­jafn­vægis sem er á milli nýlendu­veldis og nýlend­unnar, í þessu til­felli Dan­merkur og Græn­lands. Og vegna þess hvernig ég lít út,“ segir Kuluk Helms lista­kona sem tók þátt í Alþjóð­legu bók­mennta­há­tíð­inni í Reykja­vík. 

Þannig sé breyti­legt hvernig hún upp­lifi það að vera bæði frá Græn­landi og Danmörku. Kuluk útskýrir að vegna þess að hún er hvít þá geri eng­inn ráð fyrir því að hún sé frá Græn­landi. „Ég veit aldrei hvenær þetta á næst eftir að hafa áhrif á mig. Mest allt lífið hef ég fundið …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Bókmenntahátíð 2025

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár