Ólátabelgurinn á Amalienborg

Átján ára afmæli þykir að öllu jöfnu ekki ástæða til mik­illa hátíða­halda. Öðru máli gegnir þó ef um er að ræða danska prinsessu. Isabella, dóttir dönsku kon­ungs­hjón­anna, er orðin 18 ára og komin í tölu full­orð­inna.

21. apríl árið 2007 kom stúlka í heim­inn, á Rík­is­spít­al­anum í Kaup­manna­höfn, dóttir Friðriks, þáver­andi krón­prins og rík­is­arfa, og Mary krón­prinsessu. Fyrir áttu hjónin son­inn Kristján (Christian) og dóttirin nýfædda yrði því númer tvö í erfða­röð­inni í fyll­ingu tím­ans. Stúlkan fædd­ist kl. 16.02 síð­degis, vó 3.350 grömm og var 50 cmllöng.

Degi síðar, klukkan 12 á hádegi, var hleypt af 21 fall­byssu­skoti (púð­ur­skoti) í Sixtus-virk­inu á Hólmanum í Kaup­manna­höfn og á sama tíma 21 skoti á Krónborg á Hels­ingja­eyri. Þennan dag var sömu­leiðis Dannebrog flaggað á öllum opin­berum bygg­ingum í land­inu og enn fremur stræt­is­vögnum, allt sam­kvæmt hefð­inni. Ein breyt­ing hafði þó verið gerð á þess­ari hefð sem hafði lengi ríkt.

Áður en Kristján prins fædd­ist, og ekki var vitað um kynið, var reglum breytt þannig að hleypt skyldi af 21 skoti, hvort sem nýfædda barnið væri stúlka eða drengur. Fram að því hafði verið hleypt af 21 skoti ef drengur kom í heim­inn en 17 ef nýfædda barnið væri stúlka.

Isabella Henrietta Ingrid Margrethe

Hjá dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­unni eru ýmsar hefðir sem fast er haldið í. Þegar kom að því að skíra prinsess­una 1. júlí 2007 fékk hún fjögur nöfn eins og Kristján bróðir hennar og fað­ir­inn Friðrik. Isabella Hen­ri­etta Ingrid Margrethe. Síðar fengu yngri systkin hennar, tví­burarnir Vincent og Jos­ephine, einnig fjögur nöfn.

Margrét Þór­hildur drottn­ing heitir fjórum nöfnum, Jóakim, bróðir Friðriks kon­ungs, sömu­leiðis og það gera líka börn hans. Þótt flestum kunni að finn­ast fjögur nöfn nægi­legt, og kannski meira en það, hefur þó orðið sam­dráttur í nafna­fjöld­anum. Þegar Friðrik (Friðrik IX), móð­ur­afi núver­andi kon­ungs, var skírður fékk hann sjö nöfn og faðir hans Kristján X hét sex nöfnum.

Prinsessan var eins og áður sagði skírð 1. júlí 2007, sú athöfn fór fram í hall­ar­kirkj­unni við Fredens­borg á Sjálandi. Sú stutta var í skírn­ar­kjól sem gerður var fyrir skírn langa­langafa hennar, Krist­jáns X, árið 1870, og skírn­ar­font­ur­inn á sér langa sögu en hann hefur verið not­aður við allar skírnir í dönsku kon­ungs­fjöl­skyld­unni síðan árið 1671.

Skírskotun til sögu og ættar

Nöfnin fjögur sem prinsessan ber, Isabella Hen­ri­etta Ingrid Margrethe, hafa skírskotun til sögu fjöl­skyld­unnar, Isabella (eða Elísabet) af Aust­ur­ríki, Hen­ri­etta er móð­ur­nafn Mary drottn­ingar, Ingrid var langamma (móðir Mar­grétar Þór­hildar) og síð­asta nafnið í run­unni er nafn ömm­unnar Mar­grétar.

Rétt er að nefna að við fæð­ingu fékk hin óskírða prinsessa tit­il­inn ,,Hendes Kong­elige Højhed“. Ári síðar ákvað Margrét Þór­hildur drottn­ing að bæta við titl­ana á sonum sínum, mökum þeirra og afkom­endum, Isabella ber því nú tit­il­inn ,,Hendes Kong­elige Højhed Prinsesse Isabella til Danmark, komtesse af Monpezat“. Með þessu vildi Margrét Þór­hildur heiðra fjöl­skyldu Henriks eig­in­manns síns og föður sona þeirra. Að Isabella skuli titluð prinsesse til Danmark merkir að hún er í erfða­röð­inni til þjóð­höfð­ingj­ans. Móðir hennar, Mary, er dronn­ing af Danmark og því ekki í erfða­röð­inni.

Ólátabelgurinn á Amalienborg

Kon­ungs­hjónin, þau Friðrik og Mary, hafa alla tíð lagt áherslu á að halda börnum sínum utan sviðs­ljóss­ins ef svo mætti að orði kom­ast. Ekki væri verið að taka af þeim myndir í tíma og ótíma til að birta í fjöl­miðlum og að dag­legt líf barn­anna væri í föstum skorðum. Á myndum sem teknar voru við ýmis tæki­færi af fjöl­skyld­unni þegar prinsessan var á barns­aldri mátti glöggt sjá að hún var upp­á­tækja­söm og fjöl­miðlar köll­uðu hana gjarnan, í gamni, krudtug­len på Amaline­borg – óláta­belg­inn.

Isabella var á leik­skóla Garnison-kirkj­unnar í Kaup­manna­höfn og árið 2013 hóf hún nám í Tra­negård­skól­anum í Hellerup. Árið 2020 byrj­aði hún, ásamt systk­inum sínum, 12 vikna náms­dvöl í sviss­neskum heima­vist­ar­skóla. Kór­óna­veiran setti strik í þann reikn­ing. Í mars árið 2022 til­kynnti Amali­en­borg (Kongehu­set) að prinsessan myndi hefja nám í 9. bekk heima­vist­ar­skól­ans Her­lufs­holm – Her­lufs­holm Kost­skole – en Kristján bróðir hennar var nem­andi í skól­anum. Af því varð þó ekki því að í heim­ilda­mynd um skól­ann, sem danska sjón­varps­stöðin TV2 sýndi þá um vorið, var dregin upp dökk mynd af starf­sem­inni. Þar við­geng­ist ein­elti og ofbeldi, jafn­vel af kyn­ferð­is­legum toga. Myndin vakti mikla athygli og þau Friðrik og Mary hættu við að senda Isabellu þangað og jafn­framt hætti Kristján prins í skól­anum.

Isabella fór í 9. bekk í Ingrid Jesper­sens Gymnasieskole á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn og lauk þar grunn­skóla­prófi. Hóf að því loknu nám við Øregård Gymnasium í Hellerup og ef allt fer sam­kvæmt áætlun lýkur hún stúd­ents­prófi sum­arið 2026. Hvað þá tekur við er ekki vitað en hefð er fyrir því að ung­menni úr kon­ungs­fjöl­skyld­unni dvelj­ist um tíma erlendis að loknu stúd­ents­prófi. Kristján krón­prins, bróðir Isabellu, var í þrjá mán­uði í Austur-Afríku að loknu stúd­ents­prófi frá Ordrup Gymnasium í Charlottenlund sum­arið 2024 og Friðrik kóngur dvaldi í Mongólíu eftir stúd­ents­prófið.

Afmælið

Eins og fyrr var nefnt varð Isabella 18 ára 21. apríl síð­ast­lið­inn. Samkvæmt hefð­inni í kon­ungs­fjöl­skyld­unni var haldið upp á það með mynd­ar­legum hætti enda marka tíma­mótin upp­haf full­orð­ins­ár­anna.

Afmælistil­standið hófst við ráð­húsið í Árósum 11. apríl. Mörg hund­ruð manns sungu afmæl­is­söng­inn fyrir utan ráð­húsið og síðan hófst tveggja klukku­stunda skemmtun í ráð­hús­inu. Fjölmörg skemmti­at­riði voru í boði þar sem ungt fólk var í aðal­hlut­verk­unum og svo var auð­vitað boðið upp á afmælisköku. Þarna flutti Isabella sína fyrstu opin­beru ræðu og minnt­ist margra góðra stunda sem fjöl­skyldan hefði átt saman á Mar­selis­borg, sem er í eigu kon­ungs­fjöl­skyld­unnar, og þar dvelst fjöl­skyldan löngum á sumrin.

Hinn 15. apríl var röðin komin að Kaup­manna­höfn. Þar var sér­stök hátíð­ar­dag­skrá í Kon­ung­lega leik­hús­inu, tón­list, dans, stutt leikatriði svo eitt­hvað sé nefnt. Danska sjón­varpið, DR, var með margra klukku­stunda útsend­ingu í til­efni dags­ins. Hátíð­ar­dag­skráin var sýnd beint og svo var rætt við fjölda fólks sem spáði í hin kon­ung­legu spil, eins og einn fjöl­mið­ill orð­aði það. Sunnu­dags­kvöldið 20. apríl, dag­inn fyrir afmælið, var veisla á Amali­en­borg, fyrst inn­an­dyra í einni höll­inni (höll Friðriks VIII) og síðar í garð­inum. Meiri­hluti gest­anna var ungt fólk og í garð­inum var boðið upp á pylsur og sam­lokur.

Meðal gjafa sem prinsessan fékk var hár­skraut – diadem eins og það heitir á dönsku. Diadem er eins konar spöng, hefur verið kallað enn­is­djásn. Þessa gjöf fékk prinsessan frá ömmu sinni, Margréti Þórhildi. Enn­is­djá­snið er gam­alt. Ingiríður, móðir Mar­grétar Þór­hildar, kom með það þegar hún flutti til Dan­merkur og gift­ist Friðriki IX. Til er ljós­mynd af Ingiríði frá árinu 1928 þar sem hún ber enn­is­djá­snið. 

Ekki að ástæðulausu

Í dönskum fjöl­miðlum hefur tals­vert verið fjallað um allt til­standið í kringum afmælið. Thomas Larsen, blaða­maður og rit­höf­undur, sem er sér­fróður um mál­efni kon­ungs­fjöl­skyld­unnar, segir það þjóna ákveðnum til­gangi. Verið sé að kynna prinsess­una til leiks ef svo megi segja. Thomas Larsen segir að verk­efnin sem „til­heyra“ kon­ungs­fjöl­skyld­unni séu svo mörg að nauð­syn­legt sé að þau hvíli ekki öll á herðum kon­ungs­hjón­anna og krón­prins­ins Krist­jáns.

Thomas Larsen bendir á að Bene­dikte prinsessa hafi á und­an­förnum árum verið stoð og stytta Mar­grétar Þór­hildar, systur sinnar. Hann segir greini­legt að ætlun kon­ungs­hjón­anna sé að fela Isabellu ýmis verk­efni sem fari fjölg­andi með tíð og tíma.

Erfitt að vera númer tvö

Cecilie Nielsen, sagn­fræð­ingur og starfs­maður danska útvarps­ins, sagði í við­tali að nú fái Isabella hlut­verk sem mörgum hefur reynst erfitt. Að vera númer tvö í erfða­röð­inni þýðir að við­kom­andi þarf að vera við því búinn að taka við hlut­verki sem númer eitt, en búast jafn­framt við að til þess komi aldrei. „Undirbúa sig undir eitt­hvað sem aldrei verður,“ eins og Cecile Nielsen komst að orði. Hún nefndi í þessu sam­bandi Jóakim, yngri bróður Friðriks, og Harry, yngri son Karls Breta­kon­ungs.

Ef Kristján, eldri bróðir Isabellu, eign­ast afkom­anda, eða afkom­endur, breyt­ist erfða­röðin og Isabella fær­ist neðar.

Í lokin má geta þess að til­kynnt hefur verið að fæð­ing­ar­dagur Isabellu, 21. apríl, verði fram­vegis fána­dagur í Danmörku.

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár